University of Iceland
Áhrif viðbótargreininga á meðferð barna með mótþróaþrjóskuröskun
Abstract
dc:description.abstractMótþróaþrjóskuröskun er algengur hegðunarkvilli og alvarlegur hegðunarvandi. Hegðunin litast af neikvæðni, mótþróa og fjandsemi og er ein algengasta ástæða tilvísunar barna í sálfræðiþjónustu. Viðbótargreining er samsláttur einnar greiningar við aðra, eða þegar einstaklingur greinist með fleiri en tvær raskanir á sama tíma. Lítið er vitað um áhrif viðbótargreininga á meðferð barna með mótþróaþrjóskuröskun. Því er tilgangur rannsóknarinnar að athuga hvort að viðbótargreiningar (ADHD, kvíði og lyndisröskun) og ADHD virki sem verndandi eða hamlandi þáttur eða hafi engin áhrif á árangur meðferðar barna með mótþróaþrjóskuröskun. Þátttakendur í rannsókninni voru börn greind með mótþróaþrjóskuröskun (n=46). Börnin voru á aldrinum sex til 12 ára og voru 24 börn með viðbótargreiningar eða 52,2%. Af þeim voru átta (17,5%) með tvær viðbótargreiningar og einn (2,2%) með þrjár viðbótargreiningar. ADHD var algengasta fylgiröskunin meðal þátttakanda eða hjá 20 börnum (42,2%). Þar á eftir var kvíði (11 börn, 23,9%) og lyndisröskun (þrjú börn, 6,5%). Þátttakendum var raðað í tvö mismunandi úrræði. Einkenni mótþróaþrjóskuröskunar (DBRS) og tíðni og alvarleiki hegðunarvanda (HSQ) var mælt við upphaf og lok meðferðar. Einkenni mótþróaþrjóskuröskunar minnkuðu, ásamt tíðni og alvarleika hegðunarvanda hjá hópnum í heild og hjá þeim sem voru með og án viðbótargreiningar. Ekki reyndist marktækur munur á meðferðarárangri barna með eða án viðbótargreiningar og ekki heldur þegar ADHD viðbótargreining var skoðuð sérstaklega. Því virðast viðbótargreiningar ekki hafa marktæk áhrif á meðferðarárangur barna með mótþróaþrjóskuröskun, hvorki í foreldraþjálfun né hugrænni atferlismeðferð fyrir börnin sjálf. Niðurstöður rannsóknar benda til að viðbótargreiningar hafa engin áhrif á meðferð barna með mótþróaþrjóskuröskun.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Arnór Þorri Sigurðsson 1994-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 1Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/47281
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/47281