University of Iceland
Skapandi fígúruhekl : kennsluverkefni í formi vefsíðu fyrir nemendur á mið- og unglingastigi í grunnskóla
Abstract
dc:description.abstractMarkmið greinargerðarinnar, sem fylgir kennsluverkefni í formi vefsíðu, er að koma með hugmyndir og rökstyðja hvernig og hvers vegna ætti að kenna fígúruhekl í grunnskólum á miðstigi og unglingastigi. Lítið er til af bókum um aðferðina hér á landi og fannst höfundi vera vöntun á námsefni fyrir fígúruhekl. Rannsóknarspurningin var tvíþætt: Hvernig er hægt að kenna skapandi fígúruhekl í grunnskólum og tengja það við hæfniviðmiðin í Aðalnámskrá grunnskóla? Í rannsókninni var skoðað hvernig fígúruhekl tengist hæfniviðmiðum í núgildandi Aðalnámskrá grunnskóla og þrepamarkmiðum í Aðalnámskrá grunnskóla frá 1999. Með hliðsjón af því var hugað að sögu heklsins og aðferðum í hekli með áherslu á fígúruhekl. Niðurstöður höfundar eru að fígúruhekl henti vel nemendum sem eru á miðstigi eða nánar 6. og 7. bekk samkvæmt hæfniviðmiðum aðalnámskrár en einnig sem valnámskeið á unglingastigi. Í niðurstöðunum kom í ljós að hægt er að tengja kennsluverkefnið í fígúruhekli við helstu grunnþætti menntunar eins og sköpun, læsi og sjálfbærni. Niðurstöður sýna einnig að vefsíðuformið sé hentug lausn fyrir námsefni þar sem má reikna með því að nemendur hafi aðgang að spjaldtölvum. Útbúin hefur verið gagnvirk og myndræn vefsíða fyrir kennsluverkefni í fígúruhekli. Vefsíðan inniheldur myndbönd, myndir, grunnaðferðir í hekli, hugtök, leiðbeiningar, vinnuskýrslu og hugmyndir sem bæði kennarar og nemendur hafa aðgang að. Vefsíðan inniheldur grunnleiðbeiningar í fígúruhekli og sýnir vinnuferlið. Myndböndin á vefsíðunni eru hljóðlaus svo nemendur þurfa ekki að hafa heyrnartól í kennslustundum og einnig til að draga úr óþarfa truflun. Á vefsíðunni eru flýtileiðir og er hægt að smella beint á dálkana á forsíðunni til þess að komast á ákveðna blaðsíðu vefsíðunnar án þess að þurfa fletta í gegnum alla vefsíðuna. Vefsíðan inniheldur vinnuskýrslu þar sem gefin eru upp ákveðin sniðmát fyrir nemendur til að vinna hugmyndavinnu, uppskriftargerð, ígrundun og sjálfsmat. Vinnuskýrslan er einnig til að auðvelda fyrir kennurum yfirferð á verkefnum og flýta fyrir námsmati. Vefsíðan er hugsuð bæði fyrir kennara og nemendur, kennarar geta nýtt sér vefsíðuna til þess að fá hugmyndir til að útfæra fígúruhekl sem kennsluverkefni og nemendur geta nýtt sér leiðbeiningar og myndbönd til að læra grunnaðferðir í hekli og vinnuferlið við fígúruhekl.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Anna Dís Árnadóttir 2000-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/47204
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/47204