Abstract
dc:description.abstractInngangur. Langvinn lifrarbólga C (HCV) er alvarlegur sjúkdómur sem getur valdið skorpulifur og lifrarfrumukrabbameini. Á árinu 2016 fór af stað meðferðarátakið TraP HepC sem beindist að því að veita verjuhemjandi meðferð við HCV á Íslandi. FibroScan sem mælir lifrarstífleika var notuð fyrir meðferðina til að meta bandvefsmagn í lifur. Markmið rannsóknarinnar var að kanna þróun bandvefjar í lifur eftir lyfjameðferðina og áhættuþætti fyrir bandvefsbreytingum. Aðferðir. Sjúklingar sem höfðu fengið meðferð með veiruhemjandi lyfjum og farið í FibroScan á árunum 2016-2024 með marktæka fíbrósu, stig III-IV (> 9.5 kPa). Nýtt FibroScan var framkvæmt og helstu áhættuþættir fyrir lifrarsjúkdómum s.s. áfengisofnotkun og offita rannsökuð. Fyrri lifrarstífleiki var borinn saman við nýju mælinguna. Tengsl við áhættuþætti metin og þeir bornir saman á rannsóknartímabilinu. Niðurstöður. Af þeim sem höfðu undirgengist FibroScan fyrir veiruhemjandi meðferðina voru alls 95 með marktæka fíbrósu, stig III-IV. Á þeim tíma höfðu 34/95 (36%) látist. Af þeim sem voru lifandi tókst að mæla 37/61 (61%) sjúklinga (18% konur, meðalaldur 59), eftirfylgnitími milli mælinga 6.9 ár. Miðgildi lifrarstífleika fyrir meðferðina var 17.2 (10.7-27.2) kPa og 7.3 (5.4-14.1) kPa eftir meðferð (p<0.01). Alls minnkaði lifrarstífleiki hjá 31 (91%) en hækkað hjá 3 (9%). Hátt BMI og reglubundin áfengisnotkun höfðu marktæk tengsl við aukinn lifrarstífleika. Ályktun. Margir höfðu látist frá upphafi meðferðarátaks, bæði vegna lifrartengdra og lifrar ótengdra dánarorsaka. Lifrarstífleiki sem mælikvarði á bandvef í lifur hafði minnkað marktækt hjá sjúklingum eftir að hafa losað sig við veiruna. Sjúklingar með aðra áhættuþætti fyrir lifrarsjúkdómi höfðu minni lækkun eða aukningu í fibrósu eftir meðferðina.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Smári Freyr Kristjánsson 2001-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/47079
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/47079