University of Iceland
Fjargeðheilbrigðisþjónusta fyrir háskólanemendur: Kerfisbundin fræðileg samantekt
Abstract
dc:description.abstractBakgrunnur: Fjargeðheilbrigðisþjónusta hefur verið notuð til marga ára og hefur þróast mikið með tilkomu nýrrar tækni. Hún hefur borið árangur gegn geðrænum áskorunum háskólanemenda, eins og streitu, þunglyndi og kvíða. Þunglyndi, kvíði og streita eru algengir kvillar meðal háskólanemenda og geta haft neikvæðar afleiðingar á nám, andlega líðan, líkamlega heilsu og sjálfstraust nemenda. Innleiðing nýrrar tækni í geðheilbrigðisþjónustu býður upp á ýmsa möguleika fyrir háskólanema eins og auðvelt aðgengi, sveigjanleika, aukið úrval úrræða og nafnleysi sem gerir nemendur síður berskjaldaða fyrir fordómum og/eða félagslegri einangrun. Tilgangur: 1. Að gera grein fyrir hvaða tegund fjargeðheilbrigðis-þjónustu hefur gagnast háskólanemum best samkvæmt rannsóknum, 2. Hvaða geðrænar áskoranir er verið að takast á við með fjargeðheilbrigðis-þjónustu fyrir háskólanema og 3. Hvaða íhlutanir/meðferðir eru oftast veittar með fjargeðheilbrigðisþjónustu og hver er árangur af þeirri þjónustu. Aðferð: Til þess að finna rannsóknargreinar var leitað í rafrænu gagnagrunnunum Pubmed og Google scholar. Gerð var fræðileg samantekt á eigindlegum og megindlegum rannsóknum frá árunum 2014-2024. Eftir yfirferð voru 10 rannsóknir sem uppfylltu inntökuskilyrði. Rannsóknarspurningar voru þróaðar út frá PICOTS viðmiðum og PRISMA flæðirit var notað við uppsetningu leitar. Niðurstöður: Niðurstöður benda til þess að fjargeðheilbrigðisþjónusta fyrir háskólanema hafi sýnt góðan árangur. Samkvæmt eigindlegum rannsóknum hafa nemendur almennt jákvætt viðhorf til þjónustunnar en þó þurfa nokkrir þættir að vera til staðar til þess að svo sé. Þjónustan þarf að vera notendavæn, einföld í notkun, auðskiljanleg, aðgengileg og örugg. Fjargeðheilbrigðisþjónusta býður upp á auðvelt aðgengi að þjónustu og aukinn sveigjanleika fyrir nemendur. Meðferðir sem sýndu góðan árangur í fjargeðheilbrigðisþjónustu fyrir háskólanemendur voru iCBT (e. internet-delivered cognitive behavioral therapy), MVC (e. web based mindfulness and cognitive behavioral therapy), iMIND (e. internet-based mindfulness training program) og ABBT (e. web-based acceptance-based behavioral therapy). Þessar meðferðir áttu það sameiginlegt að marktækt minnka einkenni þunglyndis, kvíða og streitu hjá háskólanemum. Ályktun: Mikil þörf er á aðgengilegri og árangursríkri fjargeðheil-brigðisþjónustu fyrir háskólanemendur á Íslandi. Hjúkrunarfræðingar ættu, í þverfaglegu samstarfi, að vera virkir þátttakendur í innleiðingu slíkrar tækni í störfum sínum á öllum stigum heilbrigðisþjónustu. Hjúkrunarfræðingar hér á landi ættu að styðja og sýna forystu í að veita fjargeðheilbrigðisþjónustu ásamt því að taka þátt í klínískum rannsóknum á árangri fjargeðheilbrigðisþjónustu hér á landi. Lykilorð: Fjargeðheilbrigðisþjónusta, geðheilsa, háskólanemendur, hugræn atferlismeðferð, kvíði, núvitund, streita, þunglyndi
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Halla Sigríður Ragnarsdóttir 1999-
- Harpa Eik Óskarsdóttir 1999-
- Cheila Vanessa Santos 1998-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 2Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/47014
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/47014