Back to results

University of Iceland

Styrkleikar og veikleikar vinnustaðamenningar hjá opinberri stofnun í fjármálageiranum

Abstract

dc:description.abstract

Vinnustaðamenning er eitthvað sem einkennir eina skipulagsheild frá annarri en helstu þættir sem mynda hana eru gildi, viðhorf, upplifanir og hegðun starfsmanna. Hægt er að notfæra sér hana sem verkfæri til að ná fram árangri skipulagsheildar. Rannsókn þessi var gerð til að greina styrkleika og veikleika vinnustaðamenningar opinberrar stofnunar í fjármálageiranum og hvort marktækur munur (p<0,05) væri milli starfssviða og starfsaldurshópa. Til þess að svara eftirfarandi rannsóknarspurningum var notast við Denison-líkanið þar sem nýr og uppfærður spurningalisti Denison var lagður fyrir starfsfólk stofnunarinnar. Niðurstöður sýndu fram á að styrkleikar stofnunarinnar voru í yfirvíddinni hHutverk og stefna sem bendir til þess að starfsfólk stofnunarinnar gerir sér grein fyrir hlutverki sínu og hver stefna stofnunarinnar er. Skipulagsheildin er stefnumiðuð og stefna hennar er skýr í huga starfsfólks. Veikleikar stofnunarinnar liggja í yfirvíddinni Samkvæmni og stöðugleika sem bendir til þess að grunngildi stofnunarinnar séu veik og verkferlar óskýrir og ólík störf innan stofnunarinnar virðast ósamræmd. Marktækur munur (p<0,05) milli starfssviða mældist á einkunnum yfirvíddanna Aðlögunarhæfni og Hlutverk og stefna. Einnig mældist marktækur munur (p<0,05) milli starfsaldurshópa á einkunnum yfirvíddarinnar Þátttaka og aðild

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Anna Kristín Kristinsdóttir 1996-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/46914
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/46914

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
related terms
citation

Anna Kristín Kristinsdóttir 1996-. Styrkleikar og veikleikar vinnustaðamenningar hjá opinberri stofnun í fjármálageiranum. 2024. http://hdl.handle.net/1946/46914