University of Iceland
„Þetta er nánast lífsstíll skilurðu“. Að þróa getu og færni fyrirtækis til að ná samkeppnisforskoti.
Abstract
dc:description.abstractFyrirtæki verða að aðlagast síörum breytingum í umhverfi sínu og halda áfram að bjóða þjónustu sem þörf er talin á hverju sinni. Í rannsókninni er kannað hvernig tiltekið fyrirtæki leitar leiða til að ná árangri og viðhalda og efla stöðu sína á markaði í tæknivæddu samhengi. Rannsóknarspurningin var: Hvernig er fyrirtækið að þróa getu og færni sína til að ná samkeppnisforskoti á markaði? Stuðst var við eigindlega aðferðafræði og tekin hálfopin viðtöl við aðila tengda fyrirtækinu. Frásagnir viðmælenda voru endurspeglaðar í fræðiumræðu um auðlindasýn, þekkingu og lærdóm, kvika færni og jafnvíga færni. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að vinnulag við þróun hjá fyrirtækinu sé einkum í anda sjálfsprottinnar stefnu. Varðandi stefnumótun er starfsfólkið haft með í ráðum. Byggt er á mannauði, starfsfólkinu, og þekkingu þess og rík áhersla lögð á lærdóm. Rýnt er í stefnu fyrirtækisins út frá sjónarhóli kenninga um lærdómsskólann. Rík áhersla er á að rækta tengslaauðinn, viðhalda viðskiptatengslum og efla enn frekar og stofna til nýrra. Enn þá er lagt upp úr persónulegum samskiptum þrátt fyrir að verið sé að prófa sig áfram með tæknilausnir, m.a. gegnum skipulagsauðinn með samstarfslausnum. Niðurstöður leiddu einnig í ljós að með ríkri miðlun leyndrar þekkingar og vinnu við að gera hana ljósa og aðgengilega innan fyrirtækisins verður stöðugt til ný þekking í samvinnu og samveru starfsfólksins og í samskiptum við viðskiptavini og samstarfsaðila. Rannsóknin sýnir fram á að nýlegar umbætur varðandi vinnulag og ferla, sem starfsfólk vann í sameiningu, kallast á við klassískar kenningar um ferli þekkingarsköpunar. Í niðurstöðunum birtast jafnframt tengsl þekkingar og lærdóms annars vegar og kvikrar færni hins vegar. Frásagnir viðmælenda gefa vísbendingar um að þeir þættir kvikrar færni sem snúa að því að skynja, fanga tækifæri og umbreyta eða endurskipuleggja, eigi sér m.a. stað í tengslum við samtöl og samstarf við samstarfsfélaga og viðskiptavini og vinnu vegna verkefnanna. Draga má þá ályktun af niðurstöðunum að það séu sameiginlegir snertifletir þegar kemur að þekkingarsköpunarferli tengdu verkefnunum og getunni til að þróa með sér kvika færni.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Katrín Þórðardóttir 1976-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 2Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/46133
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/46133