Back to results

University of Iceland

Hafa breyttar aðferðir haft áhrif á tengslamyndun og samskipti við foreldra? : rannsóknarskýrsla frá aðlögun

Abstract

dc:description.abstract

Þessi rannsóknarskýrsla er byggð á starfendarannsókn sem var framkvæmd á skólaárunum 2019-2020 á yngstu deild leikskóla. Starfendarannsóknin var gerð af samstarfskonu minni, Helgu Guðmundsdóttir, og var rannsóknin meistaraverkefnið hennar í kennslufræðum við Háskóla Íslands. Rannsóknin ber titilinn, Fyrstu skrefin í leikskóla, Starfendarannsókn um aðlögun og tengslamyndun. Ég og samstarfsfólk mitt tókum þátt í rannsókninni og finnst mér áhugavert að sjá hvort að munur sé á milli ára. Meiri hluti foreldranna er að koma með yngri systkini barnanna sem voru á deildinni þegar Helga Guðmundsdóttir framkvæmdi starfendarannsókn sína í aðlögun til okkar. Rannsóknarskýrsla þessi mun kanna það hvort að foreldrar taki eftir þróuninni sem hefur orðið á starfsháttum og upplýsingaflæði á deildinni og hvort að það sé til hins betra. Rannsóknarspurningarnar eru tvær: Hafa breyttar aðferðir við aðlögun haft áhrif á tengslamyndun starfsfólks við börn og foreldra þeirra? Hafa breyttar aðferðir við aðlögun haft áhrif á samskipti við foreldra barnanna? Gögnum var safnað með því að halda úti rannsóknardagbók, vera hluti af aðlögun barnanna og með því að vera þátttakandi með deildarstjóra í mótttöku- og aðlögunarsamtölum við foreldra/forráðamenn barnanna. Gögnum úr Skólapúlsinum á innri starfsemi skólans og starfendarannsókn Helgu Guðmundsdóttur var notast við ásamt spurningalista sem ég útbjó og óskaði eftir svörum frá foreldrum barnanna. Aðferðum sem reyndust vel var haldið við en teknar út aðferðir og öðrum gagnlegri bætt inn í. Niðurstöðurnar bentu til þess að aukin ánægja sé með upplýsingaflæði deildarinnar, hvort sem það sé í formlegum eða óformlegum samskiptum, en að samskiptaforritið ATOZ megi vera uppfært reglulega af starfsmönnum deildarinnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hjördís Jónsdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/45608
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/45608

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hjördís Jónsdóttir 1984-. Hafa breyttar aðferðir haft áhrif á tengslamyndun og samskipti við foreldra? : rannsóknarskýrsla frá aðlögun. 2023. http://hdl.handle.net/1946/45608