Back to results

University of Iceland

Málþroskaröskun og snemmtæk íhlutun

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari greinargerð verður fjallað um málþroska og málþroskaröskun og hvaða áhrif hún getur haft á einstaklinginn. Einnig verður fjallað um einkenni röskunarinnar og snemmtæka íhlutun og mikilvægi hennar. Málþroski er mikilvægur þroskaþáttur sem er í mótun allt okkar líf. Mikilvægt er að málþroskinn sé góður til þess að auðvelt sé fyrir einstaklinga að tjá sig og eiga í samskiptum við annað fólk, en umfram allt er góð málfærni lykill að farsælli námsframvindu. Rannsóknir hafa sýnt það að gríðarlega mikill munur er á milli málþroska ungra barna. Frávik í málþroska getur birst í tali sem stam, raddvandamál eða framburðarfrávik og getur röskunin einnig haft í för með sér erfiðleika með úrvinnslu og minni, hegðun, félagsleg samskipti, myndun vináttu, nám og læsi. Í tveimur rannsóknum sem fjallað er um í þessari ritgerð kemur fram að snemmtæk íhlutun getur haft jákvæð áhrif á málfærni barna sem eru sein til máls og glíma við málþroskaröskun. Íhlutanirnar sem notaðar voru skiluðum góðum árangri og hélst sá árangur mánuði eftir að íhlutun lauk, sem sýnir okkur það að grípa verður inn í nógu snemma og veita þeim börnum viðeigandi aðstoð svo að þau lendi ekki í vandræðum seinna í lífinu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Inga Bjarney Óladóttir 1999-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/45448
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/45448

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Inga Bjarney Óladóttir 1999-. Málþroskaröskun og snemmtæk íhlutun. 2023. http://hdl.handle.net/1946/45448