Back to results

University of Iceland

Fasteigna- og leigumarkaður á Íslandi. Er hagstæðara að eiga eða leigja húsnæði?

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er fjallað um fasteigna- og leigumarkað á Íslandi. Skoðað er hvaða þættir hafa áhrif á eftirspurn og framboð húsnæðis og hvernig þeir hafa síðan áhrif á verð og hagkvæmni fasteigna í landinu. Rýnt verður í ólíka stöðu leigjenda og eigenda, og greining gerð meðal annars út frá kostnaði og ávinningi hvers valkost fyrir sig. Rannsóknir sýna að mikill vöxtur hefur verið á íslenskum fasteignamarkaði undanfarin ár þar sem aukin eftirspurn og takmarkað framboð hefur leitt til hækkandi íbúðaverðs. Þetta hefur skapað áskoranir fyrir einstaklinga og fjölskyldur sem vilja kaupa eða leigja húsnæði, sérstaklega þá tekjulægri. Þó það að eiga fasteign hafi kosti í för með sér, eins og t.d. eingnauppbyggingu og meiri stjórn á íbúðarrými manns, þá fylgir því einnig kostnaðarauki og ábyrgð í formi viðhalds og fasteignagjalda. Á hinn bóginn býður leiga upp á lægri fyrirframkostnað og minni ábyrgð á viðhaldi fasteigna, en hún takmarkar líka möguleika á að mynda eign og getur leitt til minni stöðugleika og öryggis hvað varðar langtímahúsnæði. Einnig er fjallað um áhrif ýmissa stefnu- og reglugerða, svo sem skipulagslaga og ríkisstyrkja, á fasteigna- og leigumarkaði. Niðurstaðan er sú að fasteigna- og leigumarkaður á Íslandi er flókinn og margþættur, og margar ólíkar breytur, allt frá þjóðhagslegri þróun til hegðunar einstaklinga, hafa áhrif á hann. Nauðsynlegt er fyrir stefnumótendur, fagfólk og einstaklinga að hafa skilning á gangverki markaðarins til að vera betur í stakk búnir til að takast á við þær áskoranir og tækifæri sem hann býður upp á.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Una Guðný Gunnarsdóttir 1998-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44096
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44096

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Una Guðný Gunnarsdóttir 1998-. Fasteigna- og leigumarkaður á Íslandi. Er hagstæðara að eiga eða leigja húsnæði?. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44096