Back to results

University of Iceland

Tungumálið tefur: Upplifun starfsfólks af erlendum uppruna á aðlögun að íslensku samfélagi

Abstract

dc:description.abstract

Í kjölfar þess að EES samningurinn var tekinn í gildi jukust fólksflutningar hingað til lands og vinnumarkaðurinn varð fjölbreyttari. Það má því segja að innflytjendur sé orðinn stór hópur innan vinnumarkaðsins hér á landi. Innan mannauðsstjórnunar fræðanna er fjallað um aðlögunarferli þegar starfsfólk byrjar að vinna í nýju landi og þá sé margt sem þarf að hafa í huga. Einstaklingar þurfa að ganga í gegnum fjögur stig U-kúrfu Black og Mendenhall (1990) til þess að komast á fjórða og síðasta stigið þurfa einstaklingar að hafa fundið ákveðinn stöðuleika í hegðun sinni sem og gjörðum sem samræmist menningunni í því landi. Markmið með þessari rannsókn var að skoða upplifun starfsfólks af erlendum uppruna á aðlögun þeirra að íslenskri menningu. Einnig er horft til þess hvernig erlent starfsfólk upplifir aðlögunarferlið sitt samanborið við þrískipa aðlögun Black, Mendenhall og Oddou (1991). Eigindleg rannsóknaraðferð var notuð við gerð þessara rannsóknar og voru tekið 8 viðtöl. Viðmælendur voru allir í starfi sem frístundaleiðbeinendur hjá Reykjavíkurborg víðs vegar um borgina og komu allir frá Evrópu. Niðurstöður rannsóknarinnar gáfu til kynna að starfsfólk frístundaheimila hjá Reykjavíkurborg sem eru af erlendum uppruna hafa náð að aðlagast öllum þremur aðlögunarskrefum Black o.fl., (1991). Tungumálið var þeim hindrun en kom þó ekki mikið að sök þar sem allir viðmælendur gátu átt samskipti á ensku við bæði yfirmenn sína og samstarfsfólk. Það að fá tækifæri til þess að vinna með börnum og læra af þeim tungumálið hefur hjálpað viðmælendunum að aðlagast samfélaginu hér á landi. Nýliðafræðsla á vegum Reykjavíkurborgar þar sem farið er yfir meðal annars siðareglur, kjarasamninga, vinnuvernd og laun svo dæmi sé tekið hafði mikið að segja hvað varðar aðlögunarhæfni þeirra hvað varðar vinnuaðlögun. Nýliðafræðslan stóðst öll fjögur stig Kirkpatrick‘s líkansins um hvort fræðslan hafi skilað árangri og gáfu niðurstöður til kynna að nýliðafræðslan hafi haft mikil áhrif á aðlögunarfærni viðmælendanna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Karen Anna Sævarsdóttir 1995-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44078
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44078

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Karen Anna Sævarsdóttir 1995-. Tungumálið tefur: Upplifun starfsfólks af erlendum uppruna á aðlögun að íslensku samfélagi. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44078