Back to results

University of Iceland

Hvernig má fjölga þeim sem safna í séreignarsparnað?

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangurinn með þessari rannsókn var að kanna möguleika til aukningar á sparnaði til ellilífeyrisára. Hagkvæmur kostur til að auka við tekjur á ellilífeyrisárum er með séreignarsparnaði. Í þessari rannsókn voru skoðaðar mögulegar leiðir til aukinnar nýtingar á séreignarsparnaði. Jafnframt voru þættir sem áhrif hafa á val einstaklinga hvort þeir kjósa að safna í séreignarsparnað skoðaðir. Einnig var athugað hvort tenging væri á milli fjármálalæsis og ákvörðunar um að safna í séreignarsparnað. Meginmarkmið rannsóknarinnar var að skoða hvort hægt sé að nýta atferlishagfræði (e. behavioral economics) til að hvetja einstaklinga til sparnaðar með séreignarsparnaði. Skoðað var hvort uppsetning úrskráningar (e. opt-out) séreignarsparnaðar kerfis myndi verða til þess að fleiri safni í séreignarsparnað en gera í dag. Séreignarsparnaðarkerfi á Íslandi er valfrjálst og þurfa einstaklingar að tilkynna vinnuveitanda um vilja sinn til að greiða í séreignarsparnað. Með úrskráningakerfum væri þessu snúið við, launþegar væru sjálfkrafa skráðir í séreignarsparnað og þyrftu að óska eftir því að skrá sig úr sparnaðinum vilji þeir ekki safna í séreignarsparnað. Við gerð rannsóknarinnar var stuðst við megindlega aðferðafræði og gögnum var safnað með rafrænni spurningakönnun. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að helstu ástæður þess að einstaklingar safna í séreignarsparnað er mótframlag vinnuveitanda og til þess að safna fyrir efri árum. Helstu ástæður þess að einstaklingar kjósa að greiða ekki í séreignarsparnað var að þeir vildu heldur ráðstafa sínum sparnaði sjálfir og að þeir töldu sig þurfa á öllu sínum tekjum að halda fyrir mánaðarlegum útgjöldum. Í ljós kom að með úrskráningakerfi fyrir séreignarsparnað eykst fjöldi þeirra sem kjósa að safna í séreignarsparnað. Hægt er að draga þá ályktun að úrskráninga séreignarsparnaðarkerfi leiði til þess að fleiri einstaklingar safna í séreignarsparnað en myndu gera ef einstaklingar þurfa að skrá sig sjálfir í séreignarsparnað. Slíkt kerfi myndi því auka fjölda þeirra sem safna í séreignarsparnað. Niðurstöður sýndu einnig að tengsl væru á milli fjármálalæsis og þess að safna í séreignarsparnað. Hægt er að færa rök fyrir því að ef fjármálalæsi ykist myndi fjöldi þeirra sem velja að safna í séreignarsparnað einnig aukast.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helga Lára Guðmundsdóttir 1995-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/40895
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/40895

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helga Lára Guðmundsdóttir 1995-. Hvernig má fjölga þeim sem safna í séreignarsparnað?. 2022. http://hdl.handle.net/1946/40895