Back to results

University of Iceland

Hugtakið „fákunnátta“ í skilningi 31. gr. samningalaga nr. 7/1936.

Abstract

dc:description.abstract

Samningaréttur er ein af undirgreinum fjármunaréttarins. Umfjöllunarefni samningaréttarins eru löggerningar sem eru hvers konar viljayfirlýsingar sem eiga það sameiginlegt að vera ætlað að stofna, viðhalda, breyta eða fella niður rétt.1 Algengustu tegundir löggerninga eru loforð og ákvaðir.2 Yfirleitt stafa löggerningar frá þeim sem ætla að skuldbinda sjálfa sig en geta einnig stafað frá milliliðum á borð við umboðsmenn eða sýslumenn.3 Löggerningar sem gerðir hafa verið kunna við vissar kringumstæður að vera ógildir. Í gegnum tíð og tíma hafa svokallaðar ógildingarreglur mótast, sem gera það að verkum að hægt sé að ógilda samninga sem gerðir hafa verið. Reglur þessar eru flestar lögfestar í III. kafla laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga sem hér eftir verða skammstöfuð sml.4 Í ritgerð þessari mun höfundur leitast við að varpa ljósi á notkun hugtaksins „fákunnátta“ í skilningi 31. gr. sml. Í næsta kafla verður fjallað almennt um samningarétt sem fræðigrein. Í þriðja kafla verður fjallað almennt um ógildingarreglur samningaréttarins. Fjórði kafli fjallar um misneytingarákvæði 31. gr. sml. Í fimmta kafla verður umfjöllun um hæfi löggerningsgjafa. Í sjötta kafla er komið að aðalumfjöllunarefni ritgerðar þessarar, hugtakinu fákunnáttu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Bjartur Elíasson 2000-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/40643
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/40643

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Bjartur Elíasson 2000-. Hugtakið „fákunnátta“ í skilningi 31. gr. samningalaga nr. 7/1936.. 2022. http://hdl.handle.net/1946/40643