Back to results

University of Iceland

Valdefling í störfum félagsráðgjafa: Efla vald og styrkleika notenda

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni rannsóknarinnar er að kanna hverjar eru þær aðferðir sem félagsráðgjafar notast við til að valdefla notendur sína ásamt því að kanna hvort einhverjar hindranir komi í veg fyrir að unnt sé að beita valdeflandi aðferðum í starfi félagsráðgjafa. Markmiðið er einnig að kanna hver merking félagsráðgjafa á hugtakinu valdefling er í störfum þeirra með notendum, jafnframt er fjallað um hugtakið notendasamráð þar sem um nátengt hugtak er að ræða við hugtakið valdeflingu. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð þar sem tekin voru sex viðtöl við starfandi félagsráðgjafa á þjónustumiðstöðvum Reykjavíkurborgar, sem starfa með notendum 18 ára og eldri. Viðmælendur voru á aldrinum 55-27 ára en starfsaldur þeirra var frá sex mánuðum til fimm ára í starfi sem félagsráðgjafar. Viðmælendur unnu með notendum á einstaklingsmiðuð grundvelli í málaflokkum sem tengjast málefnum fatlaðra, málefnum flóttamanna, málefnum barna og fjölskyldna og málefnum einstaklinga með áfengis- og vímuefnavanda og einstaklinga með andlegan og líkamlegan vanda sem höfðu verið lengi á fjárhagsaðstoð. Niðurstöðu rannsóknarinnar sýndu að viðmælendur áttu það sameiginlegt að notast við valdeflingar aðferðir til valdeflingar notenda sinna, en þó ekki til hins ýtrasta eins og kenningin og hugmyndafræðin um valdeflingu segja til um. Viðmælendur voru fullvissir um árangur valdeflingar og töldu sig hafa þekkingu á því hvernig ætti að valdefla notendur. Viðmælendur voru því meðvitaðir um hugmyndafræði valdeflingar og störfuðu að mestu leyti eftir því. Forræðishyggja viðmælenda og faglegar hindranir í nærumhverfi þeirra gerði það einnig að verkum að erfitt gat reynst fyrir viðmælendur að valdefla notendur sína. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu jafnframt í ljós að viðmælendur lögðu sýna eigin merkingu í hugtökin valdefling og notendasamráð, en viðmælendur töldu einnig að lítið samráð við notendur væri hindrun fyrir notendasamráð. Viðmælendur upplifðu jafnframt að aukin áhersla væri lögð á valdeflingu og notendasamráð í störfum þeirra með notendum. Lykilorð: valdefling notenda, þátttaka notenda, þáttaka þjónustunotenda, valdefling í félagsráðgjöf, mælanlegur árangur valdeflingar, valdefling sem kenning

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helga Elín Robertsdóttir Kluvers 1997-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/40121
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/40121

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helga Elín Robertsdóttir Kluvers 1997-. Valdefling í störfum félagsráðgjafa: Efla vald og styrkleika notenda. 2021. http://hdl.handle.net/1946/40121