Back to results

University of Iceland

„Ofbeldi er bara orðið hluti af okkar starfi“: Reynsla og upplifun félagsráðgjafa sem hafa orðið fyrir andlegu ofbeldi af hálfu skjólstæðinga

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á reynslu og upplifun félagsráðgjafa sem hafa orðið fyrir andlegu ofbeldi af hálfu skjólstæðinga í starfi sínu. Markmiðið var einnig að kanna aðdraganda, eðli ofbeldisins og afleiðingar þess á líf og starf félagsráðgjafanna ásamt því að kanna hvaða stuðning félagsráðgjafarnir fengu í kjölfarið og hvers konar öryggisráðstafanir voru til staðar í starfi þeirra. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð og tekin voru ellefu hálfstöðluð viðtöl við félagsráðgjafa sem hafa orðið fyrir andlegu ofbeldi af hálfu skjólstæðinga. Þátttakendur voru valdir með tilgangsúrtaki. Viðmælendur voru allir kvenkyns, á aldrinum 29-59 ára og með starfsreynslu frá einu ári upp í 20 ár. Viðmælendurnir voru allir starfandi félagsráðgjafar á Íslandi, átta störfuðu við barnavernd en hinir þrír störfuðu við félags- og heilbrigðisþjónustu. Aðdragandi ofbeldisins hjá félagsráðgjöfunum í rannsókninni var ýmist ósætti skjólstæðinga með þjónustu eða vinnubrögð. Ofbeldið lýsti sér einna helst í niðrandi ummælum, hótunum og ógnunum. Félagsráðgjafarnir í rannsókninni útskýrðu eða réttlættu ofbeldið og töldu það í sumum tilfellum vera hluta af starfi sínu. Þrátt fyrir það töldu þeir ofbeldi ekki vera algengt og sögðust ná samstarfi við skjólstæðinga í flestum tilfellum. Niðurstöður sýndu að ofbeldið gat haft ýmiss konar afleiðingar á líf og starf félagsráðgjafanna og lýstu þeir afleiðingum líkt og streitu og kvíða í kjölfarið. Flestir þátttakendur upplifðu góðan stuðning samstarfs- og yfirmanna og nýttu sér einnig handleiðslu af einhverju tagi. Niðurstöðurnar leiddu þó í ljós að æðri yfirmenn áttu til að sýna skilningsleysi og tóku ofbeldinu ekki nógu alvarlega að mati þátttakenda. Niðurstöðurnar benda einnig til þess að verkferlar varðandi andlegt ofbeldi séu ekki til staðar á vinnustöðum félagsráðgjafanna og öryggisverkferlar einnig óskýrir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • María Benediktsdóttir 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/40110
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/40110

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

María Benediktsdóttir 1994-. „Ofbeldi er bara orðið hluti af okkar starfi“: Reynsla og upplifun félagsráðgjafa sem hafa orðið fyrir andlegu ofbeldi af hálfu skjólstæðinga. 2021. http://hdl.handle.net/1946/40110