Abstract
dc:description.abstractInngangur: Bólusetningar eru áhrifaríkar, hindra farsóttir, koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll og eru hagkvæmar. Á Íslandi er góð þátttaka í bólusetningum, yfir 90% barna eru bólusett. Ef seinkun verður á bólusetningum barna getur það gert þau berskjaldaðri fyrir smitsjúkdómum. Markmið rannsóknarinnar var að meta hvort bólusetningar barna á Íslandi væru gefnar á réttum tíma samkvæmt tilmæli landlæknis. Bólusetningar sem gefnar voru snemma og seint voru skoðaðar og hvort heilbrigðisumdæmi, fæðingarárgangur eða heimsfaraldur COVID-19 hefðu þar áhrif. Efni og aðferðir: Í rannsókninni var stuðst við bólusetningagagnagrunn varðandi upplýsingar um bólusetningar barna við þriggja til 18 mánaða aldur á árunum 2016 til 2020. Þar kom fram aldur barnanna í dögum við bólusetningu, fæðingarmánuður og heilbrigðisumdæmi. Skoðað var hvort bólusetningarnar væru gefnar á réttum tíma, snemma, seint eða þeim hafnað. Réttur tími var talinn vera tvær vikur til eða frá markmiði. Niðurstöður: Við þriggja mánaða aldur fengu 90,6% barna DKTPHib og Pneumókokka bólusetningu á réttum tíma. Við fimm mánaða aldur var hlutfall barna sem fékk bólusetningarnar á réttum tíma 87,2% og 73,6% við 12 mánaða aldur. Bólusetning gegn meningókokkum C var gefin á réttum tíma hjá 77,7% barna við sex mánaða aldur og 75,8% barna við átta mánaða aldur. Hlutfall barna sem var bólusett gegn hlaupabólu árið 2020 á réttum tíma var 57,7% við 12 mánaða aldur og 70,2% við 18 mánaða aldur. MMR bóluefni var gefið við 18 mánaða aldur, 48,7% barna voru bólusett á réttum tíma en 36% barna fékk bóluefnið snemma. Hlutfall seinkaðra bólusetninga minnkaði árin 2016-2018, bólusetningar voru frekar gefnar seint á landsbyggðinni og COVID-19 jók hlutfall þeirra bólusetninga sem seinkaði ásamt því að færri bólusetningar voru gefnar snemma. Ályktanir: Meirihluti barna var bólusettur á réttum tíma miðað við bólusetningaskema en þó var um fjórðungur 12 mánaða barna með seinkun á sínum bólusetningum. Tafir urðu á bólusetningum barna gegn hlaupabólu árið 2020 vegna skorts á bóluefni á Íslandi. Ljóst var að heimsfaraldur hafði áhrif á tímasetningar bólusetninga ásamt viðkomandi heilbrigðisumdæmi þar sem bólusetning var gefin.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Alma Glóð Kristbergsdóttir 1996-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 1Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/39767
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/39767