University of Iceland
Dagsetrið Ronja : skaðaminnkandi dagsetur fyrir heimilislausar konur á Íslandi
Abstract
dc:description.abstractVerkefni þetta skiptist í tvo hluta: Í fyrsta lagi greinargerð sem er fræðilegur bakgrunnur tillögunnar „Dagsetrið Ronja: Skaðaminnkandi dagsetur fyrir heimilislausar konur á Íslandi. Í öðru lagi er það tillagan sjálf sem byggir á rannsóknum og hugmyndafræði sem fjallað er um ítarlega í greinargerðinni. Leitast er eftir því að svara hver ávinningur dagseturs með skaðaminnkandi hugmyndafræði fyrir heimilislausar konur sé og hvernig þátttaka í slíku starfi geti aukið velferð þátttakendanna. Greinargerðin er kaflaskipt eftir viðfangsefnum tillögunnar og í hverjum kafla er leitast við að skilgreina hugtök og kenningar sem mikilvægt er að þekkja í umræðunni um heimilisleysi kvenna. Fjallað er meðal annars um velferð, mannréttindi, skaðaminnkandi þjónustu og heimilisleysi. Fram kemur hverjar helstu orsakir heimilisleysis eru á Íslandi samanborið við erlendar rannsóknir og sérstaklega verður rýnt í heimilisleysi kvenna. Heimilisleysi kvenna hefur gjarnan aðra birtingarmynd en heimilisleysi karla og er leitast við að gefa skýra mynd af aðstæðum þessara kvenna. Markmið verkefnisins er að sýna fram á það að brýn þörf er á vettvangi sem getur tekið á móti heimilislausum konum á daginn. Dagsetrið Ronja bíður upp á skaðaminnkandi þjónustu og er sérstaklega sniðið að þörfum heimilislausra kvenna út frá þeirri faglegu vitneskju sem til er um þennan hóp. Hugtök á borð við tómstundir, frítími, þverfaglegt starf og öruggt rými einkennir meðal annars hugmyndafræði dagsetursins. Dagsetrið Ronja hefur það eina markmið að bæta velferð þátttakenda og tryggja að ekki sé brotið á grundvallarmannréttindum þeirra. Áherslur og hugmyndafræði sem Dagsetrið Ronja byggir á eru hagkvæmar þegar kemur að starfi með heimilislausum konum. Með því að bjóða upp á vettvang sem nýtir sér hugmyndafræði Ronju myndi það hafa jákvæðar afleiðingar í för með sér á þann hátt að konurnar fá að upplifa öruggt rými, frelsi og tækifæri til þess að bæta lífsgæði sín. Síðast en ekki síst hefur þjónusta sem þessi jákvæðar afleiðingar á samfélagið sem heild.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sara Linneth Lovísudóttir Castaneda 1994-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 8Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/39729
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/39729