{"id":{"repo_id":"u-iceland","oai_identifier":"oai:skemman.is:1946/39729"},"canonical_url":"https://search.dev.ndltd.org/etd/u-iceland/oai:skemman.is:1946/39729","repository":{"repo_id":"u-iceland","name":"University of Iceland","base_url":"https://skemman.is/oai/request"},"display":{"title":"Dagsetrið Ronja : skaðaminnkandi dagsetur fyrir heimilislausar konur á Íslandi","abstract":"Verkefni þetta skiptist í tvo hluta: Í fyrsta lagi greinargerð sem er fræðilegur bakgrunnur tillögunnar „Dagsetrið Ronja: Skaðaminnkandi dagsetur fyrir heimilislausar konur á Íslandi. Í öðru lagi er það tillagan sjálf sem byggir á rannsóknum og hugmyndafræði sem fjallað er um ítarlega í greinargerðinni. Leitast er eftir því að svara hver ávinningur dagseturs með skaðaminnkandi hugmyndafræði fyrir heimilislausar konur sé og hvernig þátttaka í slíku starfi geti aukið velferð þátttakendanna. Greinargerðin er kaflaskipt eftir viðfangsefnum tillögunnar og í hverjum kafla er leitast við að skilgreina hugtök og kenningar sem mikilvægt er að þekkja í umræðunni um heimilisleysi kvenna. Fjallað er meðal annars um velferð, mannréttindi, skaðaminnkandi þjónustu og heimilisleysi. Fram kemur hverjar helstu orsakir heimilisleysis eru á Íslandi samanborið við erlendar rannsóknir og sérstaklega verður rýnt í heimilisleysi kvenna. Heimilisleysi kvenna hefur gjarnan aðra birtingarmynd en heimilisleysi karla og er leitast við að gefa skýra mynd af aðstæðum þessara kvenna. Markmið verkefnisins er að sýna fram á það að brýn þörf er á vettvangi sem getur tekið á móti heimilislausum konum á daginn. Dagsetrið Ronja bíður upp á skaðaminnkandi þjónustu og er sérstaklega sniðið að þörfum heimilislausra kvenna út frá þeirri faglegu vitneskju sem til er um þennan hóp. Hugtök á borð við tómstundir, frítími, þverfaglegt starf og öruggt rými einkennir meðal annars hugmyndafræði dagsetursins. Dagsetrið Ronja hefur það eina markmið að bæta velferð þátttakenda og tryggja að ekki sé brotið á grundvallarmannréttindum þeirra. Áherslur og hugmyndafræði sem Dagsetrið Ronja byggir á eru hagkvæmar þegar kemur að starfi með heimilislausum konum. Með því að bjóða upp á vettvang sem nýtir sér hugmyndafræði Ronju myndi það hafa jákvæðar afleiðingar í för með sér á þann hátt að konurnar fá að upplifa öruggt rými, frelsi og tækifæri til þess að bæta lífsgæði sín. Síðast en ekki síst hefur þjónusta sem þessi jákvæðar afleiðingar á samfélagið sem heild.","abstract_html":"Verkefni þetta skiptist í tvo hluta: Í fyrsta lagi greinargerð sem er fræðilegur bakgrunnur tillögunnar „Dagsetrið Ronja: Skaðaminnkandi dagsetur fyrir heimilislausar konur á Íslandi. Í öðru lagi er það tillagan sjálf sem byggir á rannsóknum og hugmyndafræði sem fjallað er um ítarlega í greinargerðinni. Leitast er eftir því að svara hver ávinningur dagseturs með skaðaminnkandi hugmyndafræði fyrir heimilislausar konur sé og hvernig þátttaka í slíku starfi geti aukið velferð þátttakendanna. Greinargerðin er kaflaskipt eftir viðfangsefnum tillögunnar og í hverjum kafla er leitast við að skilgreina hugtök og kenningar sem mikilvægt er að þekkja í umræðunni um heimilisleysi kvenna. Fjallað er meðal annars um velferð, mannréttindi, skaðaminnkandi þjónustu og heimilisleysi. Fram kemur hverjar helstu orsakir heimilisleysis eru á Íslandi samanborið við erlendar rannsóknir og sérstaklega verður rýnt í heimilisleysi kvenna. Heimilisleysi kvenna hefur gjarnan aðra birtingarmynd en heimilisleysi karla og er leitast við að gefa skýra mynd af aðstæðum þessara kvenna. Markmið verkefnisins er að sýna fram á það að brýn þörf er á vettvangi sem getur tekið á móti heimilislausum konum á daginn. Dagsetrið Ronja bíður upp á skaðaminnkandi þjónustu og er sérstaklega sniðið að þörfum heimilislausra kvenna út frá þeirri faglegu vitneskju sem til er um þennan hóp. Hugtök á borð við tómstundir, frítími, þverfaglegt starf og öruggt rými einkennir meðal annars hugmyndafræði dagsetursins. Dagsetrið Ronja hefur það eina markmið að bæta velferð þátttakenda og tryggja að ekki sé brotið á grundvallarmannréttindum þeirra. Áherslur og hugmyndafræði sem Dagsetrið Ronja byggir á eru hagkvæmar þegar kemur að starfi með heimilislausum konum. Með því að bjóða upp á vettvang sem nýtir sér hugmyndafræði Ronju myndi það hafa jákvæðar afleiðingar í för með sér á þann hátt að konurnar fá að upplifa öruggt rými, frelsi og tækifæri til þess að bæta lífsgæði sín. Síðast en ekki síst hefur þjónusta sem þessi jákvæðar afleiðingar á samfélagið sem heild.","abstract_has_math":false,"creators":["Sara Linneth Lovísudóttir Castaneda 1994-"],"institution":null,"degree_name":null,"degree_level":null,"degree_discipline":null,"degree_department":null,"school":null,"contributors":["Háskóli Íslands"],"advisors":[],"committee_chairs":[],"committee_members":[],"year":2021,"date_issued":"2021-08-11T10:48:46Z","date_published":"2021-08-11T10:48:46Z","updated_at":"2026-07-27T21:37:05Z","subjects":["BA ritgerðir","Tómstunda- og félagsmálafræði","Heimilislausir","Konur","Ísland","Dagdeildir","Velferðarmál","Tómstundir"],"languages":["is"],"rights":[],"rights_urls":[],"identifier_entries":[]},"links":{"outbound_url":"http://hdl.handle.net/1946/39729","outbound_label":"Handle","outbound_source":"dc:identifier.uri"},"metadata_groups":[{"id":"people","label":"People","entries":[{"key":"dc:contributor","label":"Contributor","values":["Háskóli Íslands"]},{"key":"dc:creator","label":"Author","values":["Sara Linneth Lovísudóttir Castaneda 1994-"]}]},{"id":"academic_context","label":"Academic Context","entries":[{"key":"dc:date.accessioned","label":"Dc Date Accessioned","values":["2021-08-11T10:48:44Z"]},{"key":"dc:date.available","label":"Dc Date Available","values":["2021-08-11T10:48:44Z"]},{"key":"dc:date.issued","label":"Date","values":["2021-08-11T10:48:46Z"]},{"key":"dc:type","label":"Dc Type","values":["Thesis"]}]},{"id":"subjects_keywords","label":"Subjects and Keywords","entries":[{"key":"dc:subject","label":"Dc Subject","values":["BA ritgerðir","Tómstunda- og félagsmálafræði","Heimilislausir","Konur","Ísland","Dagdeildir","Velferðarmál","Tómstundir"]}]},{"id":"language_rights","label":"Language and Rights","entries":[{"key":"dc:language.iso","label":"Language (ISO)","values":["is"]}]},{"id":"identifiers","label":"Identifiers","entries":[{"key":"dc:identifier.uri","label":"Identifier URI","values":["http://hdl.handle.net/1946/39729"]}]},{"id":"additional","label":"Additional Metadata","entries":[{"key":"dc:description.abstract","label":"Abstract","values":["Verkefni þetta skiptist í tvo hluta: Í fyrsta lagi greinargerð sem er fræðilegur bakgrunnur tillögunnar „Dagsetrið Ronja: Skaðaminnkandi dagsetur fyrir heimilislausar konur á Íslandi. Í öðru lagi er það tillagan sjálf sem byggir á rannsóknum og hugmyndafræði sem fjallað er um ítarlega í greinargerðinni. Leitast er eftir því að svara hver ávinningur dagseturs með skaðaminnkandi hugmyndafræði fyrir heimilislausar konur sé og hvernig þátttaka í slíku starfi geti aukið velferð þátttakendanna. Greinargerðin er kaflaskipt eftir viðfangsefnum tillögunnar og í hverjum kafla er leitast við að skilgreina hugtök og kenningar sem mikilvægt er að þekkja í umræðunni um heimilisleysi kvenna. Fjallað er meðal annars um velferð, mannréttindi, skaðaminnkandi þjónustu og heimilisleysi. Fram kemur hverjar helstu orsakir heimilisleysis eru á Íslandi samanborið við erlendar rannsóknir og sérstaklega verður rýnt í heimilisleysi kvenna. Heimilisleysi kvenna hefur gjarnan aðra birtingarmynd en heimilisleysi karla og er leitast við að gefa skýra mynd af aðstæðum þessara kvenna. Markmið verkefnisins er að sýna fram á það að brýn þörf er á vettvangi sem getur tekið á móti heimilislausum konum á daginn. Dagsetrið Ronja bíður upp á skaðaminnkandi þjónustu og er sérstaklega sniðið að þörfum heimilislausra kvenna út frá þeirri faglegu vitneskju sem til er um þennan hóp. Hugtök á borð við tómstundir, frítími, þverfaglegt starf og öruggt rými einkennir meðal annars hugmyndafræði dagsetursins. Dagsetrið Ronja hefur það eina markmið að bæta velferð þátttakenda og tryggja að ekki sé brotið á grundvallarmannréttindum þeirra. Áherslur og hugmyndafræði sem Dagsetrið Ronja byggir á eru hagkvæmar þegar kemur að starfi með heimilislausum konum. Með því að bjóða upp á vettvang sem nýtir sér hugmyndafræði Ronju myndi það hafa jákvæðar afleiðingar í för með sér á þann hátt að konurnar fá að upplifa öruggt rými, frelsi og tækifæri til þess að bæta lífsgæði sín. Síðast en ekki síst hefur þjónusta sem þessi jákvæðar afleiðingar á samfélagið sem heild."]},{"key":"dc:title","label":"Title","values":["Dagsetrið Ronja : skaðaminnkandi dagsetur fyrir heimilislausar konur á Íslandi"]}]}],"canonical_facts":{"dc:contributor":["Háskóli Íslands"],"dc:creator":["Sara Linneth Lovísudóttir Castaneda 1994-"],"dc:date.accessioned":["2021-08-11T10:48:44Z"],"dc:date.available":["2021-08-11T10:48:44Z"],"dc:date.issued":["2021-08-11T10:48:46Z"],"dc:description.abstract":["Verkefni þetta skiptist í tvo hluta: Í fyrsta lagi greinargerð sem er fræðilegur bakgrunnur tillögunnar „Dagsetrið Ronja: Skaðaminnkandi dagsetur fyrir heimilislausar konur á Íslandi. Í öðru lagi er það tillagan sjálf sem byggir á rannsóknum og hugmyndafræði sem fjallað er um ítarlega í greinargerðinni. Leitast er eftir því að svara hver ávinningur dagseturs með skaðaminnkandi hugmyndafræði fyrir heimilislausar konur sé og hvernig þátttaka í slíku starfi geti aukið velferð þátttakendanna. Greinargerðin er kaflaskipt eftir viðfangsefnum tillögunnar og í hverjum kafla er leitast við að skilgreina hugtök og kenningar sem mikilvægt er að þekkja í umræðunni um heimilisleysi kvenna. Fjallað er meðal annars um velferð, mannréttindi, skaðaminnkandi þjónustu og heimilisleysi. Fram kemur hverjar helstu orsakir heimilisleysis eru á Íslandi samanborið við erlendar rannsóknir og sérstaklega verður rýnt í heimilisleysi kvenna. Heimilisleysi kvenna hefur gjarnan aðra birtingarmynd en heimilisleysi karla og er leitast við að gefa skýra mynd af aðstæðum þessara kvenna. Markmið verkefnisins er að sýna fram á það að brýn þörf er á vettvangi sem getur tekið á móti heimilislausum konum á daginn. Dagsetrið Ronja bíður upp á skaðaminnkandi þjónustu og er sérstaklega sniðið að þörfum heimilislausra kvenna út frá þeirri faglegu vitneskju sem til er um þennan hóp. Hugtök á borð við tómstundir, frítími, þverfaglegt starf og öruggt rými einkennir meðal annars hugmyndafræði dagsetursins. Dagsetrið Ronja hefur það eina markmið að bæta velferð þátttakenda og tryggja að ekki sé brotið á grundvallarmannréttindum þeirra. Áherslur og hugmyndafræði sem Dagsetrið Ronja byggir á eru hagkvæmar þegar kemur að starfi með heimilislausum konum. Með því að bjóða upp á vettvang sem nýtir sér hugmyndafræði Ronju myndi það hafa jákvæðar afleiðingar í för með sér á þann hátt að konurnar fá að upplifa öruggt rými, frelsi og tækifæri til þess að bæta lífsgæði sín. Síðast en ekki síst hefur þjónusta sem þessi jákvæðar afleiðingar á samfélagið sem heild."],"dc:identifier.uri":["http://hdl.handle.net/1946/39729"],"dc:language.iso":["is"],"dc:subject":["BA ritgerðir","Tómstunda- og félagsmálafræði","Heimilislausir","Konur","Ísland","Dagdeildir","Velferðarmál","Tómstundir"],"dc:title":["Dagsetrið Ronja : skaðaminnkandi dagsetur fyrir heimilislausar konur á Íslandi"],"dc:type":["Thesis"]},"updated_at":"2026-07-27T21:37:05Z"}