Back to results

University of Iceland

Sundkennsla á yngsta stigi grunnskóla : æfingar, tímaseðlar og leikir

Abstract

dc:description.abstract

Í grunnskólum á Íslandi er sund skólaskylda frá 1. bekk til 10. bekkjar. Á fyrstu tveimur árum nemenda í skólasundi er mikilvægt að huga að vatnsaðlögun þeirra og að þau finni til öryggis í vatni. Þegar nemendur eru komnir í 3. og 4. bekk er farið að huga meira að grunnfærni sundaðferðanna og undirbúa þau fyrir frekara sundnám. Verkefnið skiptist í tvo hluta, fræðilegan hluta og sundhandbók. Í fræðilega hlutanum er fjallað um mikilvægi hreyfinga barna og mikilvæg atriði er koma að sundkennslu þeirra. Þá er fjallað um hæfniviðmið í skólasundi og hvernig þau birtast í aðalnámskrá grunnskólanna. Í fræðilega kaflanum var einnig kannað hver sé upplifun og reynsla sundkennara við grunnskóla á Íslandi. Þessu var svarað með eigindlegri aðferðafræði rannsókn með viðtölum við fjóra sundkennara og leitað svara við eftirfarandi rannsóknarspurningum: • Hvernig má aðlaga sundkennslu með tilliti til nýjunga í sundtækni og kennslufræðilegra áhersluatriða? • Hverjir eru mikilvægustu þættir í sundkennslu barna? Sundhandbókin er samin í framhaldi af rannsókn höfundar og byggð á þeim nýjungum sem koma fram í fræðilega hluta verkefnisins. Bókinni er skipt upp þar sem fram koma áherslur fyrir hvern árgang í kennslu og mun innhalda æfingar, tímaseðla og leiki sem gott er að nota fyrir nemendur í 1. - 4. bekk grunnskóla. Höfundur vonast til þess að sundkennarar geti nýtt sér sundhandbókina til að gera sundkennsluna fjölbreyttari, skemmtilegri og komið inn þeim nýjungum sem komið hafa fram á síðustu árum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóna Helena Bjarnadóttir 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/39611
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/39611

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóna Helena Bjarnadóttir 1992-. Sundkennsla á yngsta stigi grunnskóla : æfingar, tímaseðlar og leikir. 2021. http://hdl.handle.net/1946/39611