Back to results

University of Iceland

Farsæll þroski og sjálfstjórn barna: Kynjamunur og tengsl sjálfstjórnar og farsæls þroska hjá íslenskum börnum á miðstigi grunnskóla

Abstract

dc:description.abstract

Sjálfstjórn er einn mikilvægasti þáttur mannlegrar vitundar en með henni stjórnar mannfólkið hegðun sinni, hugsun og tilfinningum. Góð sjálfstjórn hefur verið tengd við betri námsárangur og betri tilfinningastjórnun en lök sjálfstjórn hefur verið tengd við áhættuhegðun og glæpi. Sjálfstjórn hefur enn fremur verið tengd við farsælan þroska en farsæl þroskaframvinda felur í sér að skoða jákvæðar hliðar þroska í stað þeirra neikvæðu. Í fyrri rannsóknum hefur þó athyglin beinst að viljastýrðri sjálfstjórn en í eftirfarandi rannsókn er kastljósinu beint að sjálfstjórn hegðunar. Leitað var svara hvort kynjamunur væri á sjálfsstjórn hegðunar og farsælli þroskaframvindu íslenskra barna á miðstigi grunnskóla og hvort sjálfstjórn í fimmta bekk spáði fyrir um farsælan þroska einu til tveimur árum síðar. Í rannsókninni sem hér um ræðir var notast við gögn úr langtímarannsókn dr. Steinunnar Gestsdóttur og dr. Freyju Birgisdóttur þar sem þátttakendur voru 400 íslensk börn á aldrinum tíu til þrettán ára. Sjálfstjórn hegðunar var metin með Child Behavior Rating Scale (CBRS) og farsæl þroskaframvinda var mæld með Very Short Measure of Positive Youth Development (PYD-VSF). Niðurstöður sýndu að kynjamun var að finna á sjálfstjórn og farsælum þroska þar sem stúlkur sýndu hærri stig á báðum þáttum. Einnig fannst marktækur kynjamunur á undirþáttunum umhyggju, siðferðisvitund, samböndum og sjálfstrausti. Auk þess spáði sjálfstjórn á ellefta aldursári fyrir um farsælan þroska einu og tveimur árum seinna að einhverju leyti. Þessar niðurstöður eru í samræmi við fyrri rannsóknir á þessu efni og benda til þess að huga þurfi sérstaklega að því að bæta sjálfstjórn drengja til að stuðla að farsælli þroskaframvindu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Alice Hafsteina Abena Kwakye 1997-
  • Elín Jósepsdóttir 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/37550
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/37550

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
related terms
citation

Alice Hafsteina Abena Kwakye 1997-; Elín Jósepsdóttir 1993-. Farsæll þroski og sjálfstjórn barna: Kynjamunur og tengsl sjálfstjórnar og farsæls þroska hjá íslenskum börnum á miðstigi grunnskóla. 2021. http://hdl.handle.net/1946/37550