Back to results

University of Iceland

Persónuleikaeinkenni og frumkvöðlaferlið: Persónuleikaeinkenni fimmþátta líkansins og frumkvöðlaásetningur

Abstract

dc:description.abstract

Miklar framfarir hafa átt sér stað í kenningum á persónuleika á síðustu öld og hafa persónuleikarannsóknir færst stöðugt í vöxt innan fræðisviðs sálfræðinnar. Persónuleikarannsóknir afmarkast þó ekki einungis af rannsóknum innan sálfræðinnar heldur hafa þær flætt yfir á önnur fræðasvið og fengið að þróast að hluta til samhliða ýmsum greinum viðskiptafræðinnar, þ.á.m. samhliða rannsóknum á persónuleika frumkvöðla innan frumkvöðlafræðinnar. Þá fóru fræðimenn m.a. að reyna að tengja saman viðurkennda persónuleikaþætti innan sálfræðinnar við þátttakendur í viðskiptaheiminum og eðli frumkvöðlastarfseminnar. Þetta hefur reynst metnaðarfullt og erfitt markmið þar sem persónuleiki einstaklinga og frumkvöðlaferlið eru bæði afar flókin fyrirbæri. Sökum þessarar hindrunar erí þessari ritgerð reynt að einfalda markmið hennar og þrengja rannsóknarefnið með því að einblína á tengslin milli frumkvöðlaásetnings einstaklinga sem hluta af frumkvöðlaferlinu og persónuleikaeinkennum þátttakenda út frá stóra fimmþátta líkaninu. Spurningalisti á íslensku var notaður í gagnasöfnuninni sem samanstóð af sex atriðum hönnuðum til að mæla hreinan frumkvöðlaásetning og 44 atriðum, sem notuð eru til að mæla fimm víddir persónuleikans ásamt nokkrum bakrunnsbreytum. Helstu niðurstöður sýndu marktæka jákvæða fylgni milli persónuleikavíddarinnar og víðsýni og frumkvöðlaásetning þátttakenda. Einnig kom út marktæk neikvæð fylgni, annars vegar milli samvinnuþýði og frumkvöðlaásetnings og hins vegar taugaveiklununar og frumkvöðlaásetnings. Ekki fengust marktæk tengsl milli frumkvöðlaásetnings og hinum tveimur persónuleikavíddunum, þ.e. úthverfu og samviskusemi. Í umræðukaflanum er svo fjallað um hugsanlegar útskýringar sem gætu skýrt ástæður fyrir sambandinu á milli breytna n.tt. persónuleikavíddunum sem sýndu marktæka fylgni (víðsýni, taugaveiklun og samvinnuþýði) við frumkvöðlaásetning einstaklinga. Loks er komið með tillögur að frekari rannsóknum og tillögur að hagnýtingu persónuleikarannsókna fyrir einstaklinga sem hyggjast stofna fyrirtæki einhvern tímann í framtíðinni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóhann Leplat Ágústsson 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36899
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36899

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóhann Leplat Ágústsson 1987-. Persónuleikaeinkenni og frumkvöðlaferlið: Persónuleikaeinkenni fimmþátta líkansins og frumkvöðlaásetningur. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36899