{"id":{"repo_id":"u-iceland","oai_identifier":"oai:skemman.is:1946/36899"},"canonical_url":"https://search.dev.ndltd.org/etd/u-iceland/oai:skemman.is:1946/36899","repository":{"repo_id":"u-iceland","name":"University of Iceland","base_url":"https://skemman.is/oai/request"},"display":{"title":"Persónuleikaeinkenni og frumkvöðlaferlið: Persónuleikaeinkenni fimmþátta líkansins og frumkvöðlaásetningur","abstract":"Miklar framfarir hafa átt sér stað í kenningum á persónuleika á síðustu öld og hafa persónuleikarannsóknir færst stöðugt í vöxt innan fræðisviðs sálfræðinnar. Persónuleikarannsóknir afmarkast þó ekki einungis af rannsóknum innan sálfræðinnar heldur hafa þær flætt yfir á önnur fræðasvið og fengið að þróast að hluta til samhliða ýmsum greinum viðskiptafræðinnar, þ.á.m. samhliða rannsóknum á persónuleika frumkvöðla innan frumkvöðlafræðinnar. Þá fóru fræðimenn m.a. að reyna að tengja saman viðurkennda persónuleikaþætti innan sálfræðinnar við þátttakendur í viðskiptaheiminum og eðli frumkvöðlastarfseminnar. Þetta hefur reynst metnaðarfullt og erfitt markmið þar sem persónuleiki einstaklinga og frumkvöðlaferlið eru bæði afar flókin fyrirbæri. Sökum þessarar hindrunar erí þessari ritgerð reynt að einfalda markmið hennar og þrengja rannsóknarefnið með því að einblína á tengslin milli frumkvöðlaásetnings einstaklinga sem hluta af frumkvöðlaferlinu og persónuleikaeinkennum þátttakenda út frá stóra fimmþátta líkaninu. Spurningalisti á íslensku var notaður í gagnasöfnuninni sem samanstóð af sex atriðum hönnuðum til að mæla hreinan frumkvöðlaásetning og 44 atriðum, sem notuð eru til að mæla fimm víddir persónuleikans ásamt nokkrum bakrunnsbreytum. Helstu niðurstöður sýndu marktæka jákvæða fylgni milli persónuleikavíddarinnar og víðsýni og frumkvöðlaásetning þátttakenda. Einnig kom út marktæk neikvæð fylgni, annars vegar milli samvinnuþýði og frumkvöðlaásetnings og hins vegar taugaveiklununar og frumkvöðlaásetnings. Ekki fengust marktæk tengsl milli frumkvöðlaásetnings og hinum tveimur persónuleikavíddunum, þ.e. úthverfu og samviskusemi. Í umræðukaflanum er svo fjallað um hugsanlegar útskýringar sem gætu skýrt ástæður fyrir sambandinu á milli breytna n.tt. persónuleikavíddunum sem sýndu marktæka fylgni (víðsýni, taugaveiklun og samvinnuþýði) við frumkvöðlaásetning einstaklinga. Loks er komið með tillögur að frekari rannsóknum og tillögur að hagnýtingu persónuleikarannsókna fyrir einstaklinga sem hyggjast stofna fyrirtæki einhvern tímann í framtíðinni.","abstract_html":"Miklar framfarir hafa átt sér stað í kenningum á persónuleika á síðustu öld og hafa persónuleikarannsóknir færst stöðugt í vöxt innan fræðisviðs sálfræðinnar. Persónuleikarannsóknir afmarkast þó ekki einungis af rannsóknum innan sálfræðinnar heldur hafa þær flætt yfir á önnur fræðasvið og fengið að þróast að hluta til samhliða ýmsum greinum viðskiptafræðinnar, þ.á.m. samhliða rannsóknum á persónuleika frumkvöðla innan frumkvöðlafræðinnar. Þá fóru fræðimenn m.a. að reyna að tengja saman viðurkennda persónuleikaþætti innan sálfræðinnar við þátttakendur í viðskiptaheiminum og eðli frumkvöðlastarfseminnar. Þetta hefur reynst metnaðarfullt og erfitt markmið þar sem persónuleiki einstaklinga og frumkvöðlaferlið eru bæði afar flókin fyrirbæri. Sökum þessarar hindrunar erí þessari ritgerð reynt að einfalda markmið hennar og þrengja rannsóknarefnið með því að einblína á tengslin milli frumkvöðlaásetnings einstaklinga sem hluta af frumkvöðlaferlinu og persónuleikaeinkennum þátttakenda út frá stóra fimmþátta líkaninu. Spurningalisti á íslensku var notaður í gagnasöfnuninni sem samanstóð af sex atriðum hönnuðum til að mæla hreinan frumkvöðlaásetning og 44 atriðum, sem notuð eru til að mæla fimm víddir persónuleikans ásamt nokkrum bakrunnsbreytum. Helstu niðurstöður sýndu marktæka jákvæða fylgni milli persónuleikavíddarinnar og víðsýni og frumkvöðlaásetning þátttakenda. Einnig kom út marktæk neikvæð fylgni, annars vegar milli samvinnuþýði og frumkvöðlaásetnings og hins vegar taugaveiklununar og frumkvöðlaásetnings. Ekki fengust marktæk tengsl milli frumkvöðlaásetnings og hinum tveimur persónuleikavíddunum, þ.e. úthverfu og samviskusemi. Í umræðukaflanum er svo fjallað um hugsanlegar útskýringar sem gætu skýrt ástæður fyrir sambandinu á milli breytna n.tt. persónuleikavíddunum sem sýndu marktæka fylgni (víðsýni, taugaveiklun og samvinnuþýði) við frumkvöðlaásetning einstaklinga. Loks er komið með tillögur að frekari rannsóknum og tillögur að hagnýtingu persónuleikarannsókna fyrir einstaklinga sem hyggjast stofna fyrirtæki einhvern tímann í framtíðinni.","abstract_has_math":false,"creators":["Jóhann Leplat Ágústsson 1987-"],"institution":null,"degree_name":null,"degree_level":null,"degree_discipline":null,"degree_department":null,"school":null,"contributors":["Háskóli Íslands"],"advisors":[],"committee_chairs":[],"committee_members":[],"year":2020,"date_issued":"2020-08-24T16:23:28Z","date_published":"2020-08-24T16:23:28Z","updated_at":"2026-07-27T21:36:33Z","subjects":["Viðskiptafræði","Nýsköpun í atvinnulífi","Frumkvöðlafræði","Persónuleikasálfræði"],"languages":["is"],"rights":[],"rights_urls":[],"identifier_entries":[]},"links":{"outbound_url":"http://hdl.handle.net/1946/36899","outbound_label":"Handle","outbound_source":"dc:identifier.uri"},"metadata_groups":[{"id":"people","label":"People","entries":[{"key":"dc:contributor","label":"Contributor","values":["Háskóli Íslands"]},{"key":"dc:creator","label":"Author","values":["Jóhann Leplat Ágústsson 1987-"]}]},{"id":"academic_context","label":"Academic Context","entries":[{"key":"dc:date.accessioned","label":"Dc Date Accessioned","values":["2020-08-24T16:23:28Z"]},{"key":"dc:date.available","label":"Dc Date Available","values":["2020-08-24T16:23:28Z"]},{"key":"dc:date.issued","label":"Date","values":["2020-08-24T16:23:28Z"]},{"key":"dc:type","label":"Dc Type","values":["Thesis"]}]},{"id":"subjects_keywords","label":"Subjects and Keywords","entries":[{"key":"dc:subject","label":"Dc Subject","values":["Viðskiptafræði","Nýsköpun í atvinnulífi","Frumkvöðlafræði","Persónuleikasálfræði"]}]},{"id":"language_rights","label":"Language and Rights","entries":[{"key":"dc:language.iso","label":"Language (ISO)","values":["is"]}]},{"id":"identifiers","label":"Identifiers","entries":[{"key":"dc:identifier.uri","label":"Identifier URI","values":["http://hdl.handle.net/1946/36899"]}]},{"id":"additional","label":"Additional Metadata","entries":[{"key":"dc:description.abstract","label":"Abstract","values":["Miklar framfarir hafa átt sér stað í kenningum á persónuleika á síðustu öld og hafa persónuleikarannsóknir færst stöðugt í vöxt innan fræðisviðs sálfræðinnar. Persónuleikarannsóknir afmarkast þó ekki einungis af rannsóknum innan sálfræðinnar heldur hafa þær flætt yfir á önnur fræðasvið og fengið að þróast að hluta til samhliða ýmsum greinum viðskiptafræðinnar, þ.á.m. samhliða rannsóknum á persónuleika frumkvöðla innan frumkvöðlafræðinnar. Þá fóru fræðimenn m.a. að reyna að tengja saman viðurkennda persónuleikaþætti innan sálfræðinnar við þátttakendur í viðskiptaheiminum og eðli frumkvöðlastarfseminnar. Þetta hefur reynst metnaðarfullt og erfitt markmið þar sem persónuleiki einstaklinga og frumkvöðlaferlið eru bæði afar flókin fyrirbæri. Sökum þessarar hindrunar erí þessari ritgerð reynt að einfalda markmið hennar og þrengja rannsóknarefnið með því að einblína á tengslin milli frumkvöðlaásetnings einstaklinga sem hluta af frumkvöðlaferlinu og persónuleikaeinkennum þátttakenda út frá stóra fimmþátta líkaninu. Spurningalisti á íslensku var notaður í gagnasöfnuninni sem samanstóð af sex atriðum hönnuðum til að mæla hreinan frumkvöðlaásetning og 44 atriðum, sem notuð eru til að mæla fimm víddir persónuleikans ásamt nokkrum bakrunnsbreytum. Helstu niðurstöður sýndu marktæka jákvæða fylgni milli persónuleikavíddarinnar og víðsýni og frumkvöðlaásetning þátttakenda. Einnig kom út marktæk neikvæð fylgni, annars vegar milli samvinnuþýði og frumkvöðlaásetnings og hins vegar taugaveiklununar og frumkvöðlaásetnings. Ekki fengust marktæk tengsl milli frumkvöðlaásetnings og hinum tveimur persónuleikavíddunum, þ.e. úthverfu og samviskusemi. Í umræðukaflanum er svo fjallað um hugsanlegar útskýringar sem gætu skýrt ástæður fyrir sambandinu á milli breytna n.tt. persónuleikavíddunum sem sýndu marktæka fylgni (víðsýni, taugaveiklun og samvinnuþýði) við frumkvöðlaásetning einstaklinga. Loks er komið með tillögur að frekari rannsóknum og tillögur að hagnýtingu persónuleikarannsókna fyrir einstaklinga sem hyggjast stofna fyrirtæki einhvern tímann í framtíðinni."]},{"key":"dc:title","label":"Title","values":["Persónuleikaeinkenni og frumkvöðlaferlið: Persónuleikaeinkenni fimmþátta líkansins og frumkvöðlaásetningur","Personality factors and the entrepreneurial process: The big five personality traits and entrepreneurial intentions."]}]}],"canonical_facts":{"dc:contributor":["Háskóli Íslands"],"dc:creator":["Jóhann Leplat Ágústsson 1987-"],"dc:date.accessioned":["2020-08-24T16:23:28Z"],"dc:date.available":["2020-08-24T16:23:28Z"],"dc:date.issued":["2020-08-24T16:23:28Z"],"dc:description.abstract":["Miklar framfarir hafa átt sér stað í kenningum á persónuleika á síðustu öld og hafa persónuleikarannsóknir færst stöðugt í vöxt innan fræðisviðs sálfræðinnar. Persónuleikarannsóknir afmarkast þó ekki einungis af rannsóknum innan sálfræðinnar heldur hafa þær flætt yfir á önnur fræðasvið og fengið að þróast að hluta til samhliða ýmsum greinum viðskiptafræðinnar, þ.á.m. samhliða rannsóknum á persónuleika frumkvöðla innan frumkvöðlafræðinnar. Þá fóru fræðimenn m.a. að reyna að tengja saman viðurkennda persónuleikaþætti innan sálfræðinnar við þátttakendur í viðskiptaheiminum og eðli frumkvöðlastarfseminnar. Þetta hefur reynst metnaðarfullt og erfitt markmið þar sem persónuleiki einstaklinga og frumkvöðlaferlið eru bæði afar flókin fyrirbæri. Sökum þessarar hindrunar erí þessari ritgerð reynt að einfalda markmið hennar og þrengja rannsóknarefnið með því að einblína á tengslin milli frumkvöðlaásetnings einstaklinga sem hluta af frumkvöðlaferlinu og persónuleikaeinkennum þátttakenda út frá stóra fimmþátta líkaninu. Spurningalisti á íslensku var notaður í gagnasöfnuninni sem samanstóð af sex atriðum hönnuðum til að mæla hreinan frumkvöðlaásetning og 44 atriðum, sem notuð eru til að mæla fimm víddir persónuleikans ásamt nokkrum bakrunnsbreytum. Helstu niðurstöður sýndu marktæka jákvæða fylgni milli persónuleikavíddarinnar og víðsýni og frumkvöðlaásetning þátttakenda. Einnig kom út marktæk neikvæð fylgni, annars vegar milli samvinnuþýði og frumkvöðlaásetnings og hins vegar taugaveiklununar og frumkvöðlaásetnings. Ekki fengust marktæk tengsl milli frumkvöðlaásetnings og hinum tveimur persónuleikavíddunum, þ.e. úthverfu og samviskusemi. Í umræðukaflanum er svo fjallað um hugsanlegar útskýringar sem gætu skýrt ástæður fyrir sambandinu á milli breytna n.tt. persónuleikavíddunum sem sýndu marktæka fylgni (víðsýni, taugaveiklun og samvinnuþýði) við frumkvöðlaásetning einstaklinga. Loks er komið með tillögur að frekari rannsóknum og tillögur að hagnýtingu persónuleikarannsókna fyrir einstaklinga sem hyggjast stofna fyrirtæki einhvern tímann í framtíðinni."],"dc:identifier.uri":["http://hdl.handle.net/1946/36899"],"dc:language.iso":["is"],"dc:subject":["Viðskiptafræði","Nýsköpun í atvinnulífi","Frumkvöðlafræði","Persónuleikasálfræði"],"dc:title":["Persónuleikaeinkenni og frumkvöðlaferlið: Persónuleikaeinkenni fimmþátta líkansins og frumkvöðlaásetningur","Personality factors and the entrepreneurial process: The big five personality traits and entrepreneurial intentions."],"dc:type":["Thesis"]},"updated_at":"2026-07-27T21:36:33Z"}