University of Iceland
Heimsmarkmiðin sem undirstaða kennsluefnis í myndmennt : greinargerð og verkefnasafn
Abstract
dc:description.abstractVerkefni þetta er hluti af 10 ECTS lokaverkefni til B.Ed.-prófs með áherslu á list- og verkgreinar við Deild faggreinakennslu, Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Verkefnið er tvískipt og samanstendur af greinargerð og vefsíðu sem ætlað er að styðja við kennslu í myndmennt. Verkefnið er unnið út frá Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og stuðst er við grunnþætti menntunar og hæfniviðmið aðalnámskrá grunnskóla. Vefsíðan er miðuð að myndmenntakennslu í grunnskólum og inniheldur fjölbreytt verkefni. Verkefnin tengjast fjórum af sautján heimsmarkmiðum. Vefsíðan og verkefnin eru hönnuð með miðstig grunnskóla í huga og miðuð að markmiðum og hæfniviðmiðum aðalnámskrár við lok 7.bekkjar. Vefsíða og verkefnasafn eru ætluð myndmenntakennurum í grunnskólum sem vilja vinna með Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna hvort sem er í þemavinnu eða sem stök verkefni í kennslustund myndmenntar. Í fræðilegum hluta greinargerðarinnar er fjallað um sköpun og möguleikahugsun byggða á hugmyndum kennslufræðingsins Önnu Craft en einnig verður stuðst við fræðimennina Gardner, Freud, Winnicott og Guilford. Fjölgreindarkenning Gardners er skoðuð og þá sérstaklega út frá myndmennt. Komið er inn á grunnþætti menntunar samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla og rýnt í hvernig þeir tengjast myndmennt og Heimsmarkmiðunum. Vonast höfundur þessa verkefnis til þess að myndmenntakennarar nýti sér vefsíðuna og verkefnin með grunnþætti menntunar, aðalnámskrá grunnskóla og Heimsmarkmiðin að leiðarljósi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jóna Þorgerður Andrésdóttir 1980-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/36774
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/36774