Back to results

University of Iceland

Kennaramenntun á tímamótum : kennaranemar í launuðu starfsnámi

Abstract

dc:description.abstract

Það er stór stund þegar kennaranemi stígur úr hlutverki nemanda yfir í hlutverk kennara. Í kennaranáminu er lögð áhersla á að styðja kennaranemann þegar hann tekur þetta skref. Markmið þessa rannsóknarverkefnisins var að varpa ljósi á reynslu kennaranema í launuðu starfsnámi. Það er hluti af 35 eininga námskeiðapakka á lokaári grunnskólakennaranáms sem inniheldur bæði bóklegar einingar og vettvangseiningar. Rannsóknin er framkvæmd á breytingatímum þegar kennaranemar hafa í fyrsta sinn tækifæri til að vera í launuðu starfsnámi. Fylgst er með þremur kennaranemum í námi og starfi á þessum tímamótum. Í fyrri rannsóknum hafa nýlega útskrifaðir kennarar talað um þörf á meira verklegu námi í kennarmenntunina. Reynt hefur verið að mæta þeim óskum með löngu vettvangsnámi í meistaranáminu. Rannsóknir hafa einnig sýnt mikið álag meðal nýrra kennara og mikilvægi þess að fá góðan stuðning leiðsagnarkennara í starfi í upphafi ferilins. Með þetta í huga var framkvæmd eigindleg rannsókn í formi viðtala og vettvangsathugana með áherslu á að kanna líðan, reynslu og upplifun kennaranemanna í launuðu starfsnámi. Skoðað er hvað þeim finnst nýtast úr kennaranáminu og hvar þeir telji sig veika. Fjallað er um hvernig stuðningur úr bóklegum þætti námskeiðisins reynist, hverjar eru áskoranirnar og hvernig kennaranemarnir hafa eflst í starfi. Niðurstöðurnar sýna mikið álag þegar nám og starf blandast saman fyrstu mánuðina. Kennaranemunum fannst þeir vaxa í starfi, verða sjálfsöruggari og styrkjast sem fagmenn. Einnig kom í ljós að nemar fengu góðan stuðning í grunnskólunum, sem og frá námskeiðinu sem vettvangsnámið er hluti af. Með því að tengja saman fræði og starf skapaðist góður umræðugrundvöllur til að ræða við aðra kennaranema í sömu stöðu. Það kom í ljós að margt gott á sér stað í þessu vettvangsnámi. Ýmislegt má bæta eins og telst eðlilegt þegar eitthvað er framkvæmt í fyrsta sinn. Fræðin sýna að fyrstu mánuðirnir eru mesti álagstíminn fyrir nýja kennara. Góður og markviss stuðningur í upphafi starfsnámsins hefur jákvæð áhrif fyrir kennaranemana í rannsókninni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Anna Sigríður Snorradóttir 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36657
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36657

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Anna Sigríður Snorradóttir 1990-. Kennaramenntun á tímamótum : kennaranemar í launuðu starfsnámi. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36657