Back to results

University of Iceland

Vímuefnanotkun aldraða: misnotkun lyfseðilsskyldra lyfja og lausasölulyfja

Abstract

dc:description.abstract

Vímuefnaneysla aldraðra er falinn vaxandi vandi bæði hér á landi og út í heimi. Spáð er að öldruðum muni fjölga hratt víða í heiminum og með því þjónusta og umönnun til aldraða einstaklinga. Það mun koma til með að vera stærsta áskorun velferðarsamfélaga víðsvegar og verður meðal stærstu kostnaðarliða heilbrigðisþjónustu. Aldraðir eru helstu notendur heilbrigðisþjónustu á Íslandi og af þeirri forsendu verður að auka vitund almennings og heilbrigðisstarfsfólks um vímuefnavanda aldraðra og opna umræðuna um það málefni. Ljóst er að stjórnvöld þurfa að móta heildræna heilsueflandi stefnu sem gerir ráð fyrir ólíkum þörfum þessa stækkandi hóps. Í þessari ritgerð er fjallað um vímuefnanotkun Íslendinga með það að markmiði að varpa ljósi á notkun ávanabindandi lyfja.. Enn fremur er vikið sérstaklega að lyfjamisnotkun og misnotkun lyfseðilsskyldra lyfja meðal eldra fólks. Helstu niðurstöður leiddu í ljós að lyfjanotkun hér á landi er umtalsvert hærri en á hinum norðurlöndunum, en í nokkrum tilfellum var ávísanatíðni lyfja á Íslandi tvöfalt hærri en í þeim ríkjum. Vímuefnavandi aldraðra er falinn vandi að því leytinu til að birtingarmyndir vímuefnaneyslu eru aðrar en fyrir ungt fólk. Aldraðir eru sérstaklega viðkvæmir fyrir neikvæðum aukaverkunum vímuefna þar með talið lyf, þar sem líkamsvarnir þeirra eru minni og jafnframt þurfa þeir minna af vímuefnum til þess að finna fyrir áhrifum. Lykilhugtök: vímuefnanotkun, vímuefnamisnotkun, neysla, lyfseðilsskyld lyf, lyf í lausasölu og fíknivandi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jelena Kospenda 1995-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36006
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36006

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jelena Kospenda 1995-. Vímuefnanotkun aldraða: misnotkun lyfseðilsskyldra lyfja og lausasölulyfja. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36006