University of Iceland
Að vera ungur innflytjandi á atvinnumarkaði Afleiðingar búferlaflutnings, fordómar og líðan
Abstract
dc:description.abstractHeimildasamantekt þessi er lokaverkefni höfunda til BS prófs í hjúkrunarfræði. Skoðað var hver reynsla innflytjenda er á atvinnumarkaði með áherslu á fordóma og andlega líðan. Einblínt var á inn-flytjendur á aldrinum 18-40 ára. Innflytjendum á Íslandi hefur fjölgað mikið síðastliðin ár og samhliða því hefur fjölbreytileiki mismunandi menningarheima aukist innan atvinnumarkaðsins hér á landi. Einstaklingar sem flytja í nýtt samfélag þurfa oft á tíðum gott stuðningsnet svo þeir geti aðlagast samfélaginu á sem heilbrigðasta hátt. Tilgangur samantektarinnar var að greina frá andlegri líðan ungra innflytjenda á atvinnumarkaði, varpa ljósi á upplifaða fordóma og athuga hvernig má bæta stöðuna innan heilbrigðiskerfisins. Einnig var skoðuð almenn líðan þeirra innflytjenda á atvinnumarkaði og hvaða áhrif búferlaflutningar hafa á þessa einstaklinga. Rýnt var í hlutverk hjúkrunarfræðinga og hver nálgun þessa skjólstæðingahóps er innan heilbrigðiskerfisins. Samantektin er fræðileg samantekt sem fólst í heimildaleit um fyrrnefnd viðfangsefni, heimilda var aflað meðal annars í gegnum gagnasöfnin PubMed, Leitir og Google Scholar ásamt fræðibókum, á tímabilinu janúar til apríl 2020. Niðurstöður rannsókna bentu til þess að andleg vanlíðan innflytjenda orsakast að hluta til af þáttum tengdum atvinnumarkaði, en oft á tíðum er þar að finna vettvang fordóma og mismununar. Eftir vinnslu þessarar ritgerðar var ljóst að þörf er á frekari rannsóknum á þessu efni hér á landi. Það er því von höfunda að með samantekt þessari sé hægt að vekja athygli á mikilvægi þess að uppræta fordóma í samfélaginu og vekja athygli á líðan ungra innflytjenda á atvinnumarkaði. Lykillhugtök: Innflytjendur, hjúkrunarfræði, andleg líðan, geðheilsa, fordómar, atvinnumarkaður.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Inga Bergdís Gunnarsdóttir 1996-
- Rakel Ösp Óskarsdóttir 1996-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/35442
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/35442