Back to results

University of Iceland

"Hér innanhúss hef ég allt": Upplifun stjórnenda af starfsánægju í íslenskum heildsölufyrirtækjum.

Abstract

dc:description.abstract

Starf stjórnenda er mjög krefjandi og fylgir mikil ábyrgð. Það að vera stjórnandi í heildsölufyrirtæki felur í sér að afla viðskiptatengsla, auka tekjur og halda verkefnum gangandi fyrir starfsfólk. Þetta kallar á samspil á milli stjórnenda og undirmanna. Markmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á upplifun og reynslu stjórnenda af starfi í heildsölufyrirtæki á Íslandi varðandi starfsánægju og hver ávinningurinn er. Tekin voru tíu viðtöl við stjórnendur sem starfa í heildsölu í dag sem hafa meira en fimm ára reynslu í starfi. Rannsóknin var framkvæmd með djúpviðtölum að hætti eigindlegra aðferða og studd með fyrirbærafræðilegri nálgun. Að henni lokinni komu fram fimm meginþemu. Fyrsta var starfið sem uppfyllir allar mínar væntingar, undirþema þess var ábyrgðin sem drífur mig áfram og að allir stefni í sömu átt. Annað meginþema var mikilvægi þess að ávinningur hljótist af starfinu og undirþemað að fyrirtækið væri í takt við tíma, og það er sigur ef því gengi vel. Þriðja þema var menningin sem skapaðist hér og undirþema að það væri gott að fá hvatningu og umbun, skapa tækifæri og spennandi að starfa í heildsölufyrirtæki. Fjórða meginþema var breytilegt umhverfi og undirþema vinnustress og að finna jafnvægi. Fimmta er að skapa ákveðin tækifæri til neytenda og undirþema var lækkaður kostnaður og meira úrval og að vera leiðandi á markaði. Helstu niðurstöður leiddu í ljós að upplifun stjórnenda varðandi starfsánægju heildsölu var að laun þyrftu að vera fullnægjandi, samstarfsfólk skipti máli og að verkefni væru krefjandi ásamt umhverfi. Heildsölumarkaðurinn er stór og er mjög breytilegur eftir þörfum neytenda. Stjórnendur þurfa því alltaf að vera tilbúnir í breytingar. Þátttakendur töldu ávinning af starfi sínu oftast vera háðan því að afla meiri tekna fyrir fyrirtækið og mynda enn meiri viðskiptatengsl innan markaðar sem þeir störfuðu hjá. Flestir þátttakendur voru ánægðir í starfi og upplifðu að fyrirtækið hefði komið vel fram við þá og að starfið uppfyllti væntingar þeirra

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Óliver Thanh Tung Vu 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/35121
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/35121

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Óliver Thanh Tung Vu 1994-. "Hér innanhúss hef ég allt": Upplifun stjórnenda af starfsánægju í íslenskum heildsölufyrirtækjum.. 2020. http://hdl.handle.net/1946/35121