Back to results

University of Iceland

"Það fer ekkert nám fram ef börnunum líður ekki vel" : velferð nemenda á skóladegi

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar er að auka skilning á getu grunnskólakerfisins til þess að hlúa að velferð nemenda og um leið að benda á þætti sem þarf að bæta í kerfinu til þess að betur sé hægt að sinna þessum þætti skólastarfsins. Hér er leitast við að svara því með hvaða hætti grunnskólakennarar í heilsueflandi grunnskólum hlúa að huglægri, félagslegri og efnislegri velferð nemenda sinna og hvaða hindranir þeir telji helst verða á vegi þeirra í þeirri vinnu. Hér er um eigindlega tilviksrannsókn að ræða þar sem tekin voru opin viðtöl við átta kennara sem allir kenna við heilsueflandi grunnskóla á Höfuðborgarsvæðinu. Kennararnir kenna á öllum stigum grunnskólans. Flestir eru umsjónarkennarar en einnig er þar að finna faggreinakennara, sérkennara og list- og verkgreinakennara. Þátt tóku tveir karlmenn og sex konur sem öll hafa mikla kennslureynslu. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að þessir kennarar telja sig hlúa að huglægri, félagslegri og efnislegri velferð nemenda sinna með því að stuðla að góðum skólabrag. Það gera þeir með eflingu jákvæðra viðhorfa nemenda gagnvart sjálfum sér, kennurunum, skólanum, náminu og félögunum. Inni í þeirri eflingu er falin myndun persónulegra tengsla kennara við nemendur, jákvæð félagstengsl milli nemenda og skýr bekkjarstjórnun auk styðjandi og áhugahvetjandi kennsluhátta. Uppeldi sem ýtir undir siðferði nemenda og hegðun kemur einnig skýrt fram. Helstu hindranir sem þessir kennararnir upplifa er skortur á stefnumótun og úrræðum varðandi erfið samskipti við foreldra og slæmt aðgengi að faglegri ráðgjöf og sálfræðiþjónustu. Einnig benda þeir á erfiðleika við að finna tíma fyrir slökun í stundaskrá. Tengslaleysi unglinga við umsjónarkennara er einnig áhyggjuefni auk þess sem fáar og takmarkaðar leiðir eru til þess að efla sjálfræði nemenda. Framlag rannsóknarinnar beinist að því að benda á leiðir sem stuðlað gætu að aukinni velferð grunnskólanemenda með það fyrir augum að hægt sé að taka mið af þeim við áframhaldandi stefnumótun heilsueflandi grunnskóla. Því til viðbótar er ljósi varpað á þá getu og þær þarfir sem grunnskólarnir hafa í þessum efnum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Elín Elísabet Jóhannsdóttir Löve 1964-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/34555
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/34555

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elín Elísabet Jóhannsdóttir Löve 1964-. "Það fer ekkert nám fram ef börnunum líður ekki vel" : velferð nemenda á skóladegi. 2019. http://hdl.handle.net/1946/34555