Back to results

University of Iceland

Tengsl íslenskra sósíalista við Sovétríkin. Þýðingar á skýrslum sendiherra Sovétríkjanna á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Þessi meistararitgerð felur í sér þýðingu mína á eitt hundrað blaðsíðum úr skýrslum frá árinu 1962 sem sendiherra Sovétríkjanna á Íslandi, Alexandrov Alexandrov, ritaði og greinargerð um þessa þýðingu. Sendiherrann lýsir í skýrslunum samræðum sínum við ýmsa fulltrúa í Sósíalistaflokki Íslands. Sendiherrann og viðmælendur hans koma víða við og er rætt um stöðu stjórnmála á Íslandi, kosningar, efnahagsmál, utanlandsferðir, heimsmálin o.fl. Flestar skýrslurnar fjalla um samræður sendiherrans við formann Sósíalistaflokksins, Einar Olgeirsson, en einnig um samræður við þáverandi félaga í miðstjórn Sameiningarflokks alþýðu – Sósíalistaflokksins, Eggert Þorbjarnarson, þáverandi framkvæmdastjóra Máls og menningar, Kristin E. Andrésson og þáverandi varaformann Sósíalistaflokksins, Lúðvík Jósepsson. Fyrsti hluti ritgerðarinnar varpar ljósi á stöðu mála í Sósíalistaflokknum árið 1962 sem var viðburðarríkt fyrir flokkinn til þess að veita lesendum skýrslnanna innsýn sem ætti að auðvelda lestur skýrslanna og setur innihald þeirra í samhengi við atburði líðandi stundar á ritunartíma þeirra. Seinni hluta ritgerðarinnar er umfjöllun um texta- og orðræðugreiningu. Beint er sjónum að þýðingafræðilegum þáttum, greini orðræðuna í skýrslunum og fjalla um nokkra þætti textagreiningar sem er mikilvægt er að skoða áður en ráðist er í það verkefni að þýða texta. Ég styðst við skrif Þórunnar Blöndal og Beaugrande og Dressler um orðræðugreiningu, greiningu textategunda samkvæmt aðferð Katharinu Reiss og textagreiningu Christiane Nord. Ég fjalla um innri og ytri þætti eins og t.d. sendanda og markmið, viðtakendur og forþekkingu, orðaforða og uppbyggingu sem eru hluti af textagreiningu Christiane Nord og textategund samkvæmt Reiss. Ég fjalla einnig um þætti í orðræðugreiningu Þórunnar Blöndal eins og t.d. samloðun, aðstæðusamhengi, samfellu og samþykki, og textavensl.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigurður Aron Árnason 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/34420
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/34420

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigurður Aron Árnason 1987-. Tengsl íslenskra sósíalista við Sovétríkin. Þýðingar á skýrslum sendiherra Sovétríkjanna á Íslandi. 2019. http://hdl.handle.net/1946/34420