University of Iceland
„Stundum er þetta frábært, stundum alls ekki“. Upplifun starfsfólks nýskapandi hugbúnaðarfyrirtækja á Agile.
Abstract
dc:description.abstractNotkun Agile hjá nýskapandi hugbúnaðarfyrirtækjum var skoðuð í þessari rannsókn. Áhersla var lögð á að skoða sprotafyrirtæki og fyrirtæki sem nýlega höfðu þróast frá skilgreiningu sprotafyrirtækis. Markmið rannsóknarinnar var að skoða Agile út frá upplifun starfsfólks. Eigindlegri rannsóknaraðferð var því beitt og fór gagnaöflun fram með viðtölum við tólf starfsmenn nýskapandi hugbúnaðarfyrirtækja, hjá samtals fimm fyrirtækjum. Rannsóknarspurningarnar eru þrjár: Hver er upplifun starfsfólks nýskapandi hugbúnaðarfyrirtækja á Agile aðferðum? Hvaða Agile aðferðir eru nýskapandi hugbúnaðarfyrirtæki að nota? Sú þriðja: Hvaða grundvallarreglur Agile eru mikilvægar fyrir nýskapandi hugbúnaðarfyrirtæki? Niðurstöður rannsóknar leiddu í ljós að enginn viðmælandi taldi sitt teymi starfa eftir skilgreindri Agile aðferð, heldur voru allir með sínar útgáfur. Aðferðirnar áttu margt sameiginlegt með Scrum, Kanban og Lean startup. Mikilvægustu grundvallarreglur Agile að mati viðmælenda voru reglur fimm og tólf. Upplifun starfsfólks gaf til kynna að helstu kostir við notkun Agile aðferða væru aukin samskipti, að starfa í stuttum vinnulotum og fá reglulega endurgjöf á afurðir frá notendum og viðskiptavinum. Niðurstöður sýna fram á að erfiðleikar við að starfa eftir Agile aðferðum var að takast á við skyndilegar breytingar, tímastjórnun á fundum og áætlanagerð. Lykilorð: Agile, verkefnastjórnun, nýsköpun, sprotafyrirtæki, verkefni.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Edda Ýr Georgsdóttir Aspelund 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/32979
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/32979