Back to results

University of Iceland

Hvað er börnunum fyrir bestu? Tilkynningar leikskóla til barnaverndarnefnda

Abstract

dc:description.abstract

Á fyrstu æviárum barna skipar leikskólinn stóran sess í lífi þeirra og fjölskyldna þeirra. Barnið eyðir stórum hluta dagsins í leikskólanum og stígur þar sín fyrstu skref í skólagöngu sinni. Því er mikilvægt að þar fari sem faglegast starf fram og að þar fari fagfólk að lögum og virði skyldu sína til að tilkynna til barnaverndaryfirvalda þegar þess þarf. Afar fáar tilkynningar berast frá leikskólum og dagforeldrum til barnaverndaryfirvalda er viðfangsefni þessarar ritgerðar. Í ritgerðinni verður fjallað um sögu og þróun dagvistunar og barnaverndar á Íslandi, tilkynningarskylduna, ferli og flokkun barnaverndarmála. Hlutfall tilkynninga sem berast frá leikskólum og dagforeldrum til barnaverndarnefnda landsins er skoðað í samanburði við heildarfjölda tilkynninga og það borið saman við hlutfall barna á aldrinum 1-5 ára hér á landi og hlutfall barna sem eru í vistun á leikskólum og hjá dagforeldrum. Jafnframt verður fjallað um erlendar rannsóknir sem viðkoma efni þessarar ritgerðar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hildur Anna Karlsdóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/32878
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/32878

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hildur Anna Karlsdóttir 1985-. Hvað er börnunum fyrir bestu? Tilkynningar leikskóla til barnaverndarnefnda. 2019. http://hdl.handle.net/1946/32878