Back to results

University of Iceland

Vinnustaðamenning Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða

Abstract

dc:description.abstract

Vinnustaðamenning er mikilvægur þáttur í því að þróa öruggt heilbrigðiskerfi. Hún er flókið fyrirbæri sem finnst í öllum skipulagsheildum og endurspeglar meðal annars þau gildi, viðhorf, hegðun, venjur og samskiptamynstur sem einkennir þann hóp sem í skipulagsheildinni starfar. Vinnustaðamenning er í lykilhlutverki við það að hafa áhrif á og bæta frammistöðu skipulagsheilda. Hún er tengd við árangur sem hjá heilbrigðisstofnunum er meðal annars tengdur við árangur af meðferð, öryggi og gæðum þjónustu við skjólstæðinga. Markmið rannsóknarinnar er að kanna vinnustaðamenningu Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða út frá líkani Denison um vinnustaðamenningu og sjá hvar helstu styrkleikar og veikleikar vinnustaðmenningarinnar liggja. Framkvæmd var megindleg rannsókn þar sem spurningalisti Denison var lagður fyrir starfsmenn stofnunarinnar í lok janúar 2019. Í rannsókninnu tóku þátt 79 starfsmenn. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að vinnustaðamenning Heilbrigðisstofnunarinnar Vestfjarða telst veik. Allar menningarvíddir bæði yfir- og undirvíddir voru undir viðmiðunareinkunn og lentu á aðgerðabili. Helstu styrkleikar vinnustaðamenningarinnar komu fram í undirvíddunum áhersla á skjólstæðinga, frelsi til athafna og lærdómur. Aðal veikleiki vinnustaðmenningarinnar reyndist í undirvíddunum breytingar og þróun mannauðs og hæfni. Ekki reyndist marktækur munur við samanburð á vinnustaðamenningu milli starfsstöðva en marktækur munur kom fram þegar starfseiningar voru bornar saman. Einnig kom fram marktækur munur þegar niðurstöður voru skoðaðar með tilliti til menntunar, aldurs og starfsaldurs. Niðurstöðurnar benda til þess að einkenni eru um lítinn sveigjanleika og skort á innri áherslum og að bæta þurfi stöðugleika.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Anna Lóa Magnúsdóttir 1965-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/32732
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/32732

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Anna Lóa Magnúsdóttir 1965-. Vinnustaðamenning Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. 2019. http://hdl.handle.net/1946/32732