University of Iceland
„Samfélagsmiðlar...væri besta leiðin til að ná til sem flestra“. Reynsla nemenda af náms- og starfsfræðslu og sýn þeirra á nýtingu samfélagsmiðla við slíka fræðslu
Abstract
dc:description.abstractMarkmið rannsóknarinnar var tvíþætt, annars vegar að kanna upplifun og reynslu þátttakenda af náms- og starfsfræðslu og hins vegar viðhorf þeirra á notkun samfélagsmiðla sem upplýsingaveitu um nám og störf. Tekin voru hálfstöðluð viðtöl við sex þátttakendur á aldrinum 18-19 ára sem eru á lokaári sínu í framhaldsskóla. Þátttakendur voru bæði búsettir á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að viðmælendur höfðu litla reynslu af náms- og starfsfræðslu í grunn- og framhaldsskóla. Upplifun þeirra af náms- og starfsfræðslu fólst aðallega í vettvangsheimsóknum og námskynningum. Misjafnt var eftir viðmælendum hvort upplifun þeirra af náms- og starfsfræðslu hafi verið gagnleg eður ei. Allir viðmælendur litu sem svo á að það væri góð hugmynd að nýta samfélagsmiðla við náms- og starfsfræðslu þar sem að nú til dags væri allt aðgengilegt á internetinu og á samfélagsmiðlum. Niðurstaðan er sú að nemendur fá litla sem enga náms- og starfsfræðslu sem bendir til þess að enn í dag er óvissa í samfélaginu varðandi gagnsemi hennar. Viðmælendur töldu að það væri hentug leið að nýta samfélagsmiðla til þess að ná betur til ungmenna. Því er mikilvægt að nýta sér þekkingu innan náms- og starfsráðgjafarfræða um upplýsingamiðlun til einstaklinga í gegnum samfélagsmiðla. Vonast er til að rannsóknin geti gefið innsýn hvernig hægt er að auka upplýsingaflæði til nemenda um náms- og starfstækifæri.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hildur Mist L. Pálmarsdóttir 1992-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/32368
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/32368