Back to results

University of Iceland

Starfsmannavelta. Viðskiptafræðilegt hugtak eða persónubundin ákvörðun

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari rannsókn voru með samanburðargreiningu og raunathugun greindar ástæður starfsmannaveltu hjá einu meðalstóru íslensku fyrirtæki. Starfsmannavelta þar var umtalsverð en samanburðargreining leiddi í ljós að starfsmannavelta fyrirtækisins var 28% á meðan hún var á bilinu 6-13% hjá viðmiðunarhópum og var með þessari rannsókn grafist fyrir um ástæður starfsmannaveltunnar. Ytri greining á vinnumarkaði á Íslandi leiddi í ljós að á greiningartímanum var hann í mikilli uppsveiflu, atvinnuleysi var lítið og því umfram eftirspurn eftir vinnuafli. Innri greining snéri að mannauðsferlum, notkun þeirra og skipulagi innan fyrirtækisins og því hvort þessir þættir styddu við stjórnendur og starfsmenn.. Við greiningu kom í ljós að vandinn var margþættur. Niðurstöðurnar eru þær að þrátt fyrir að ytri aðstæður hafi verið óhagstæðar þá geta þær ekki skýrt þann mun sem er á starfsmannaveltu umrædds fyrirtækis og annarra íslenskra fyrirtækja. Margt var athugavert við uppbyggingu og framkvæmd starfsmannamála og ferla. Fyrirtækið hafði vaxið hratt og var orðið tvískipt þar sem starfssemi höfuðstöðva var með öðru ólíku sniði en starfsstöðva þess. Innan fyrirtækisins höfðu litlar breytingar átt sér stað varðandi ráðningar og umsýslu starfsmannamála starfsstöðva um áratugaskeið. Engin eða illa skilgreind ferli voru til sem ætlað var að styðja við nauðsynlega þætti mannauðsstjórnunar. Stjórnskipulag var óskilvirkt og dró úr ábyrgð millistjórnenda auk þess sem fyrirtækjamenning var talin vera óheilbrigð. Að auki voru laun lág og vinnuskylda óhófleg. Þessar aðstæður auk misræmis í upplýsingagjöf til starfsmanna t.d. við ráðningu komu í veg fyrir að starfsmenn festust í sessi og rof á sálfræðilega samningnum, ef hann á annað borð myndaðist fyllilega, var augljós afleiðing og þar af leiðandi aukin starfsmannavelta líka.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Snorri Jónsson 1971-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/3220
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/3220

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Snorri Jónsson 1971-. Starfsmannavelta. Viðskiptafræðilegt hugtak eða persónubundin ákvörðun. 2009. http://hdl.handle.net/1946/3220