Back to results

University of Iceland

Brauð er barna matur

Abstract

dc:description.abstract

Heimilisfræði er námsgrein sem er kennd í Íslenskum grunnskólum og er oft í daglegu tali kölluð matreiðsla. Þar ættu nemendur meðal annars að læra hvernig þeir geta bætt lífsstíl sinn og neytt hollari matar. Tilgangur þessa verkefnis er að fara yfir valdar kennslubækur í heimilisfræði og skoða í þeim uppskriftirnar með áherslu á baksturuppskriftirnar og skoða og reikna út í þeim trefjamagn prósentu og magn viðbætts sykurs. Síðan var athugað hvort að uppskriftirnar eru í samræmi við það sem mælt er með í Skráargatinu og Embætti landlæknis um ≥6% magn trefja og ≤5% magn viðbætts sykurs. Þá voru valdar uppskriftir sem voru einnig skoðaðar og bornar saman við þessi gildi til þess að sjá hvort hægt væri að mæla með þeim. Þessar nýju uppskriftir innihalda mest heilhveiti, rúg, hafrar sesam, sólblómaolía, þurrkuð fræ, einnig ávexti, sultur, ávaxta mauk sem eru fáanlegar á íslenskum verslunum. Þetta eru 28 uppskriftir. Kennsluækurnar innihalda samtals 90 bakstur uppskriftir. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar voru aðeins 9 uppskriftir (10%) sem innihéldu ≥6% af trefjum á meðan að 45 uppskriftir (50%) innihéldu ≤5% af viðbættum sykri. Hins vegar voru niðurstöðurnar úr uppskriftunum 28 á þann veg að 11 uppskriftir innihéldu ≥6% trefja og eingöngu 25 uppskriftir innihéldu ≤5% af viðbættum sykri. Þessar niðurstöður sýna okkur að þörf er á að breyta eða bæta þær uppskriftir sem notaðar eru við kennslu og möguleiki er á því að nota uppskriftirnar 28 í staðinn.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Bjarni Guðjónsson 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31926
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31926

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Bjarni Guðjónsson 1970-. Brauð er barna matur. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31926