Back to results

University of Iceland

Fjölskyldulíf í sátt við greiningu á einhverfu

Abstract

dc:description.abstract

Meginmarkmið mitt var að varpa ljósi á sálrænt álag á foreldra einhverfra barna og leiðir til lausna með áherslu á fjölskyldumeðferð. Unnið var út frá fræðilegum heimildum sem tengdust kenningum um áföll og geðhlífar, tengslamyndun barns við foreldra og áhrif uppeldishátta á þroska barns. Álag í umönunnarhlutverkinu getur ógnað ánægju í hjónabandinu og því jafnvægi sem er nauðsynlegt til þess að barnið þroskist og tryggð geðtengsl við foreldra skapist. Skoðuð var fjölskyldan í heild sem kerfi samkvæmt Kerfiskenningunni og í tengslum við umhverfið samkvæmt Vistræðikerfislíkani Bronfenbrenners þar sem stuðningur frá stofnana(exo)- og makrókerfinu skiptir miklu máli varðandi hvernig fjölskyldur bregðast við aðstæðum. Leitað var við að svara spurningunni: Hvaða lausnir eru til staðar til að styðja við góð tengsl í fjölskyldum einhverfra barna? Niðurstöður voru þær að barnið er alltaf hluti af stærri heild þar sem fjölskyldan getur gefið skýra mynd af líðan og atferli barnsins. Það er hlutverk þroskaþjálfa að veita foreldrunum ráðgjöf og fagfólki ber að taka mið af venjum, tengslum, styrkleikum og veikleikum fjölskyldunnar, þess vegna ættu félagsþjónustan og heilsugæslan hvar sem er á landinu að horfa meira til þess að ráða til sín sérmenntaða fjölskyldufræðinga í fjölskyldumeðferð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kremena K. Nikolova-Fontaine 1974-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31684
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31684

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kremena K. Nikolova-Fontaine 1974-. Fjölskyldulíf í sátt við greiningu á einhverfu. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31684