Back to results

University of Iceland

Skólatengd líðan barna : rannsókn á skólatengdri líðan barna með og án sérþarfa að mati foreldra

Abstract

dc:description.abstract

Gerð var spurningakönnun til að skoða skólatengda líðan nemenda með og án sérþarfa að mati foreldra. Könnunin var hluti af stærri rannsókn sem miðar að því að skoða áhrif breyttra kennsluhátta á nám, líðan og sjálfsmynd nemenda með sérþarfir. Skólatengd líðan er einn þáttur lífsgæða barna sem meðal annars er hægt að meta með svörum foreldra um líðan barna sinna. Spurningalisti var sendur með tölvupósti til foreldra allra nemenda í 4.-7. bekk tveggja grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, samtals 421 nemanda með eða án sérþarfa. Gild svör bárust frá foreldrum 327 barna og svarhlutfall því 77,7%. Rúmlega 30% nemenda voru með sérþarfir að mati foreldra sinna. Gögnum var safnað með spurningum um skapferli, líðan og skóla og nám, en spurningarnar voru meðal annars fengnar úr Kidscreen-52 og KINDL, en það eru listar sem meta lífsgæði barna. Markmiðið með rannsókninni var að svara eftirfarandi rannsóknarspurningum: a) Hvernig er skólatengd líðan barna með sérþarfir að mati foreldra þeirra? b) Er munur á mati foreldra á skólatengdri líðan barna með sérþarfir samanborið við mat foreldra jafnaldra án sérþarfa? og c) Er munur á mati foreldra á skólatengdri líðan barna með sérþarfir eftir því hvort þau fá sérkennslu eða ekki? Úrvinnsla gagna fór fram með töflureikniforritunum Excel og SPSS. T-próf tveggja óháðra úrtaka var notað til þess að reikna út hvort um marktækan mun milli hópa væri að ræða. Einnig var lýsandi tölfræði reiknuð. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar gáfu til kynna að skólatengd líðan barna með sérþarfir er ekki eins góð og hjá börnum án sérþarfa, að mati foreldra. Ætla má að skólatengd líðan tíunda hvers barns með sérþarfir sé slæm og ánægja þess í skóla sé lítil. Ennfremur virðist skólatengd líðan barna með sérþarfir, sem eru í sérkennslu, betri heldur en hjá börnum með sérþarfir sem ekki eru í sérkennslu, að mati foreldra. Niðurstöður benda til að líðan nemenda með sérþarfir er almennt verri en jafnaldra án sérþarfa að mati foreldra, en að líðan sé metin heldur betri meðal þeirra sem fá sérkennslu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Eydís Einarsdóttir 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28489
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28489

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Eydís Einarsdóttir 1970-. Skólatengd líðan barna : rannsókn á skólatengdri líðan barna með og án sérþarfa að mati foreldra. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28489