Back to results

University of Iceland

Sterkir strákar : sjálfstyrkinganámskeið fyrir 10-13 ára drengi með kvíðaröskun

Abstract

dc:description.abstract

Verkefnið mitt er 10 eininga lokaverkefni til BA-gráðu í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands. Verkefnið er tvískipt og skiptist annars vegar í greinargerð sem ber titilinn Sterkir strákar og hins vegar námskeið sem ber sama heiti og byggist á fræðilegum hluta verkefnisins ásamt þeirri þekkingu sem ég hef öðlast undanfarin þrjú ár í námi mínu. Áhugi minn á þessu viðfangsefni vaknaði þegar ég fór að rýna í það starf sem ég hef unnið við sem lýtur að félags- og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga í gegnum árin. Að mínu mati er starf fyrir börn í fimmta til sjöunda bekkjar í grunnskóla ábótavant. Þegar litið er til þess starfs sem fram fer í félags- og frístundamiðstöðvum landsins, er oftast nær minnsta úrvalið fyrir þann aldurshóp. Námskeiðið er sett upp fyrir drengi á aldrinum tíu til þrettán ára sem eru félagslega óvirkir og glíma við kvíða og félagsfælni og er það hugsað til að virkja þá til þátttöku í félags- og tómstundastarfi. Það getur einnig nýst þeim drengjum sem hafa misst áhugan á félags- og tómstundastarfi á þessum aldri. Námskeiðið á að nýtast starfsfólki félagsmiðstöðva og/eða skóla eða öðru fagfólki sem vinnur með þennan tiltekna drengjahóp. Á námskeiðinu er unnið að því að styrkja mannleg samskipti og félagslega hegðun, að drengirnir læri að þekkja sjálfa sig og öðlast kjark til að stíga út fyrir þægindarammann. Er von höfundar að námskeðið verði nýtt til að styrkja þennan hóp drengja áður en vandamál þeirra ágerast.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Birna Daðadóttir Birnir 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28457
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28457

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Birna Daðadóttir Birnir 1992-. Sterkir strákar : sjálfstyrkinganámskeið fyrir 10-13 ára drengi með kvíðaröskun. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28457