Back to results

University of Iceland

Áhrif stýrðrar kennslu Engelmanns og fimiþjálfunar á lestrarfærni 7 ára stúlku með miðlungs þroskahömlun

Abstract

dc:description.abstract

Stýrð kennsla Engelmanns (e. Direct Instruction) og fimiþjálfun (e. Precision Teaching) eru raunprófaðar kennsluaðferðir sem reynst hafa nemendum með námsörðugleika vel. Stýrð kennsla Engelmanns byggir á hröðum takti þar sem kennslan er brotin niður í vel afmörkuð þrep. Kennarinn leiðir nemendur í gegnum þrepin með markvissri stýringu og gætir þess að allir taki virkan þátt í kennslunni. Gengið er úr skugga um að færnin sé lærð áður farið er yfir í næsta þrep. Í fimiþjálfun fær nemandinn að æfa ný atriði sem talin eru lærð með því að renna yfir stuttar tímamældar æfingar. Með þessu er stuðlað enn frekar að fumlausri færni auk þess sem æfingarnar gefa góðan mælikvarða á hvernig námið gengur. Nemendur, bæði í almennri bekkjarkennslu og sérkennslu, hafa náð skjótum árangri þegar stýrð kennsla Engelmanns er notuð samhliða fimiþjálfun. Markmiðið með þessari rannsókn var að kanna áhrif stýrðrar kennslu Engelmanns og fimiþjálfunar á grunnfærni við hljóðun stafa hjá sjö ára stúlku með miðlungs þroskahömlun, dæmigerða einhverfu, athyglisbrest og flogaveiki. Niðurstöður sýndu að færni hennar jókst fyrir tilstuðlan þessara kennslu aðferða.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir 1993-
  • Laufey Erla Jónsdóttir 1978-
  • Erla Hrönn Unnsteinsdóttir 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/27828
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/27828

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir 1993-; Laufey Erla Jónsdóttir 1978-; Erla Hrönn Unnsteinsdóttir 1993-. Áhrif stýrðrar kennslu Engelmanns og fimiþjálfunar á lestrarfærni 7 ára stúlku með miðlungs þroskahömlun. 2017. http://hdl.handle.net/1946/27828