Back to results

University of Iceland

Fyrst og fremst jákvætt viðmót. Mikilvægi í góðri þjónustu

Abstract

dc:description.abstract

Markmiðið með þessari rannsókn var að kanna hvernig stjórnendur og starfsfólk Vínbúðarinnar upplifa þjónustu. Stjórnendur fyrirtækisins eru skoðaðir sérstaklega og hvort þeir eiga eitthvað sameiginlegt þegar kemur að þjónustu. Einnig var fengið sjónarhorn almenns starfsfólks um viðhorf þeirra til stjórnenda sinna og hvernig þeir upplifðu að stjórnendur sinntu þjónustunni. Eigindlegri rannsóknaraðferð var beitt. Tekin voru átta viðtöl við stjórnendur og starfsfólk sem starfa hjá Vínbúðinni. Rannsókninni var ætlað að varpa ljósi á hvaða þættir skipta máli í fyrirtækjum til þess að ná fram framúrskarandi þjónustu og hvernig stjórnendur ná henni innan síns fyrirtækis. Helstu niðurstöður voru þær að bæði stjórnendur og starfsfólk telja að jákvætt viðmót við viðskiptavininn og þekking á vörunni séu mikilvægastu þættirnir þegar kemur að því að veita góða þjónustu. Einnig virtist sem það eina sem stjórnendur innan Vínbúðarinnar ættu sameiginlegt væri stefna fyrirtækisins. Rannsakandi ályktar út frá niðurstöðum að þjónustustefna fyrirtækisins sé að skila tilætluðum árangri alla leið til almennra starfsmanna í verslunum þess. Æðstu yfirmenn Vínbúðarinnar vinna vel að þjónustustefnunni og tala mikið um hana en þegar litið er til starfsmanna í verslun upplifa þeir hana sem ákveðið andrúmsloft innan fyrirtækisins en ekki stefnu. Þetta kom fram í viðtölum við bæði almennt starfsfólk og stjórnendur. Stjórnendur töluðu um stefnur en starfsfólk um andrúmsloft eða skipulag innan fyrirtækisins sem einkennist af þjónustustefnu þess. Gildin þrjú: lipurð, þekking og ábyrgð, hafa því tekið sinn sess í fyrirtækinu. Lykilorð: Þjónusta, þjónustustefna, jákvætt viðmót og bjartsýni

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Linda Rós Jóhannesdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/27613
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/27613

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Linda Rós Jóhannesdóttir 1984-. Fyrst og fremst jákvætt viðmót. Mikilvægi í góðri þjónustu. 2017. http://hdl.handle.net/1946/27613