University of Iceland
Skólinn sem velferðarstofnun "Það vantar spýtur og það vantar sög"
Abstract
dc:description.abstractGrunnskólar á Íslandi eru velferðarstofnanir í þeim skilningi að innan þeirra á að veita öllum nemendum menntun við hæfi og koma til móts við ólíka nemendur með ólíkar þarfir. Hlutverk kennara er að veita þessum fjölbreytta hópi sem er innan grunnskólanna menntun sem hentar hverjum og einum. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvaða upplifun og reynslu kennarar í grunnskólum á Íslandi hafa á stuðningi og þjónustu við nemendur sem glíma við námserfiðleika með velferð nemenda í huga. Þess er vænst að niðurstöðurnar nýtist á gagnlegan hátt við stefnumótun og skipulagningu innan skólakerfisins. Viðmælendur í þessari rannsókn voru þrettán fagmenntaðir starfsmenn úr grunnskólum í Reykjavík. Rannsóknin var unnin úr frá eigindlegri aðferð og tekin voru rýnihópaviðtöl. Helstu niðurstöður eru þær að sá mannauður sem er innan grunnskólanna er dýrmætur og flest starfsfólk skólanna er tilbúið að leggja mikið á sig við að þjónusta nemendur með námserfiðleika. Niðurstöður sýna jafnframt að skapa þarf fleiri úrræði þannig að þjónustan geti verið einstaklingsmiðaðri. Menntastefnan á Íslandi byggir meðal annars á stefnunni um skóla án aðgreiningar og því er að er að finna innan grunnskólanna allan þann fjölbreytileika sem fyrirfinnst í samfélaginu. Út frá niðurstöðum rannsóknarinnar má ætla að auka þurfi fjármagn til skólanna til að þeir geti unnið út frá gildandi menntastefnu og komið til móts við þarfir allra nemenda. Lykilorð: Námserfiðleikar, sérkennsla, stuðningur, seigla, álag, mannauður.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Gunnrún Theodórsdóttir 1970-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/26403
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/26403