University of Iceland
Forboðna rýmið: Textatengsl kvikmyndanna American Psycho og Death Proof við ævintýrið Bláskeggur
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð eru kvikmyndirnar American Psycho (2000, Mary Harron) og Death Proof (2007, Quentin Tarantino) greindar út frá textatengslum þeirra við ævintýrið Bláskeggur. Ævintýrið kom fyrst út árið 1697 í ævintýrasafninu Sögur Gæsamömmu en höfundur þess var franski rithöfundurinn Charles Perraults. Á meðan flest ævintýra Perraults skipuðu sér fastan sess í bókahillum barnaherbergja fann Bláskeggur sér annan farveg. Hrollvekja um morðóðan eiginmann, forvitna eiginkonu og forboðið herbergi fullt af blóðugum líkum hefur ef til vill ekki þótt viðeigandi efniviður í barnaefni þegar fram liðu stundir. Aftur á móti birtast lykilþemu og minni ævintýrisins endurtekið í afþreyingarefni ætluðu fullorðnumum, til að mynda í kvikmyndunum sem hér verða til umfjöllunar. Í fyrsta kafla ritgerðinnar er ævintýrið um Bláskegg í forgrunni. Farið er yfir meginþemu þess, lykilminni og höfuðpersónunum gerð skil. Þá taka við tveir greiningarkaflar. Í þeim fyrri er lögð áhersla á hvernig eitt lykilminni frásagnarinnar, forboðna rýmið og leyndarmálið, sem það hefur að geyma, birtist í kvikmyndinni American Psycho. Í þeim síðari er rýnt í virkni kvenpersónanna í Death Proof. Leitast verður eftir því að finna út hvernig nýr bakgrunnur varpar öðru ljósi á hið aldagamla ævintýri og dýpkar merkingarheim frásagnarinnar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Steinunn Jónsdóttir 1989-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/24471
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/24471