Back to results

University of Iceland

„Þessi erfiðu þungu einstaklingsmál.“ Persónuleg ráðgjöf náms- og starfsráðgjafa í grunnskólum

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar var þrenns konar. Í fyrsta lagi að kanna upplifun náms- og starfsráðgjafa af persónulegri ráðgjöf í grunnskólum. Í öðru lagi að kanna viðhorf þeirra til þess hversu vel undirbúnir þeir eru til að takast á við persónuleg og félagsleg vandamál sem hrjá nemendur. Og í þriðja lagi að fá innsýn inn í helstu vandamál þeirra einstaklinga sem sækjast eftir persónulegri ráðgjöf. Rannsóknin var unnin með eigindlegri rannsóknaraðferð og byggist á viðtölum við sjö náms- og starfsráðgjafa í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstöður sýndu að meirihluti starfstíma náms- og starfsráðgjafa fer í persónulega ráðgjöf og virðist þörfin fyrir slíka ráðgjöf vera mikil. Einnig kom í ljós að helstu vandamál sem hrjá börn og unglinga í dag eru þunglyndi, kvíði og samskiptavandi og að komum vegna kvíðatilvika hefur fjölgað mikið hjá náms- og starfsráðgjöfum. Viðmælendur sögðu að undirbúningur námsins væri ófullnægjandi og þörf hefði verið fyrir ýtarlegri fræðslu varðandi raskanir nemenda til að undirbúa þá fyrir ráðgjöf við nemendur með raskanir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóhanna Lúvísa Reynisdóttir 1978-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/24183
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/24183

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóhanna Lúvísa Reynisdóttir 1978-. „Þessi erfiðu þungu einstaklingsmál.“ Persónuleg ráðgjöf náms- og starfsráðgjafa í grunnskólum. 2016. http://hdl.handle.net/1946/24183