Back to results

University of Iceland

Sáttaheimild Samkeppniseftirlitsins

Abstract

dc:description.abstract

Í ritgerðinni er fjallað um heimild Samkeppniseftirlitsins til að ljúka máli með sátt skv. 17. gr. f. samkeppnislaga nr. 44/2005, en þar kemur fram í 1. mgr. að „Hafi fyrirtæki eða samtök fyrirtækja gerst brotleg við ákvæði laga þessarra eða ákvarðanir Samkeppniseftirlitsins er Samkeppniseftirlitinu heimilt, með samþykki málsaðila að ljúka málinu með sátt. Sama gildir ef um er að ræða samruna sem hindrar virka samkeppni, sbr. 17. gr. [og 17. gr. a – 17. gr. e]“. Í fyrsta hluta ritgerðarinnar er fjallað um sáttaheimildir samkeppnisyfirvalda í Bandaríkjunum þar sem sáttaheimildin er upprunnin og svo sáttaheimildir Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins þar sem litið var til regluverksins í Bandaríkjunum við innleiðingu. Að því loknu er farið yfir sáttaheimild Samkeppniseftirlitsins hér á landi, er þetta gert í því skyni að hægt sé að bera sáttaheimildina hér á landi saman við þær sáttaheimildir sem áður voru nefndar. Fjallað er um hvað getur falist í sáttum Samkeppniseftirlitsins, málsmeðferð í sáttamálum, helstu sáttamál reifuð og þar sem við á sett fram gagnrýni á sáttaheimildina. Er í því skyni fjallað um sáttaheimildir bandarískra samkeppnisyfirvalda sem og sáttaheimildir Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, skoðuð er framkvæmdin þar og þar sem við á heimfært upp á umfjöllun um sambærilegar heimildir Samkeppniseftirlitsins og sú heimfærsla nýtt til að benda á það sem betur má fara. Einnig eru skoðaðar sáttaheimildir annarra eftirlitsyfirvalda hér á landi og kannað hvort þær bjóði uppá lausnir á þeim vandkvæðum sem sáttaheimild Samkeppniseftirlitsins felur í sér.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Magnús Salvarsson 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/24008
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/24008

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Magnús Salvarsson 1982-. Sáttaheimild Samkeppniseftirlitsins. 2016. http://hdl.handle.net/1946/24008