Back to results

University of Iceland

Ævintýranám í félagsmiðstöðvum

Abstract

dc:description.abstract

Markmið verkefnisins er að hvetja félagsmiðstöðvar til notkunar ævintýranáms í starfi sínu með unglingum og að koma á fót upplýsingaveitu um ævintýranám. Verkefnið er tvíþætt og samanstendur annars vegar af vefsíðu og hins vegar greinagerð. Vefsíðan inniheldur ýmsan fróðleik og hagnýtar upplýsingar um ævintýranám og útivist auk hugmyndabanka með verkefnum og uppástungum að viðfangsefnum. Honum er ætlað að vera góður grunnur fyrir starfsfólk félagsmiðstöðva til að koma sér af stað í starf með ævintýranámi. Greinagerðin er grunnurinn að vefnum og undirstaða verkefnisins í heild. Þar eru færð rök fyrir því hvernig ævintýranám gagnast félagsmiðstöðvum og hvernig það samræmist markmiðum félagsmiðstöðva. Þá er þar farið yfir fræðilegan bakgrunn ævintýranáms, fjallað um þroska unglinga og lykilhugtök skýrð og skilgreind. Hluta efnisins er að finna bæði á vefsíðunni og í greinagerðinni. Lykilorð: Útinám, náttúra, útilíf

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Unnur Ósk Unnsteinsdóttir
  • Guðrún Ása Kristleifsdóttir
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/2176
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/2176

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Unnur Ósk Unnsteinsdóttir; Guðrún Ása Kristleifsdóttir. Ævintýranám í félagsmiðstöðvum. 2009. http://hdl.handle.net/1946/2176