Back to results

University of Iceland

Líkamsrækt: Tengsl við ánetjun hreyfingar og aukna vöðvastærð

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð verður sjónum beint að áhrifum fíknar og hvort fólk geti ánetjast líkamsrækt. Fjallað verður um áhrif þess að stunda of mikla líkamsrækt sem getur orðið einstaklingnum skaðleg en það hefur verið nefnt líkamsræktarfíkn. Líkamsræktarfíkn er oft skoðuð sem undirflokkur atferlisfíknar, en í nýjustu útgáfu DSM greiningarkerfisins er spilafíkn eina skráða atferlisfíknin. Fyrst verður gerð grein fyrir hugtakinu fíkn almennt. En síðan verður rætt um atferlisfíkn og undirflokka hennar sem ekki hafa enn verið viðurkennd í DSM-V greiningarkerfinu sem atferlisfíkn. Aðal umfjöllunarefni þessarar ritgerðar er líkamsræktarfíkn, uppruni og einkenni hennar og þau greiningarviðmið og mælitæki sem hafa verið þróuð til að meta hvort að einstaklingur sé með líkamsræktarfíkn eða ekki. Einnig er stutt umfjöllun um tengsl líkamsræktarfíknar við átröskun sem og umfjöllun um vöðvaskynjunarröskun sem er fíkn í stærri vöðva. Að lokum verður svo talað um þær lífeðlisfræðilegu útskýringar sem talið er að stuðli að þróun líkamsræktarfíknar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Rósa Sólveig Steinarrsdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/21622
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/21622

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Rósa Sólveig Steinarrsdóttir 1991-. Líkamsrækt: Tengsl við ánetjun hreyfingar og aukna vöðvastærð. 2015. http://hdl.handle.net/1946/21622