Back to results

University of Iceland

Að læra að vera Íslendingur: Hlutverk trúarbragða í mótun þjóðarsamsemdar

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni þessarar ritgerðar er þjóðarsamsemd og hvernig hún skapast gjarnan í samtali við ríkjandi trúarbrögð. Trúarbrögð hafa lengi vel verið miðpunktur innan mannfræðinnar og endurspeglast mikilvægi þeirra í áhrifum á undirliggjandi samfélagsgerð. Ritúöl og tákn spila þar hlutverk og hér er athyglinni beint að því hvernig tákn eru mikilvæg miðlunartæki innan menningar. Sú umræða er svo sett í samhengi við ríkjandi þjóðartákn Íslendinga og hvernig þau viðhalda tengingu við trúarleg gildi. Íslendingar hafa opinbera þjóðkirkju og er saga Íslands talin byggja á kristilegum grunni. Þrátt fyrir vaxandi fjölmenningu og breytt viðhorf virðist trúin þó ekki vera á undanhaldi. Greina má samt ákveðna hugarfarsbreytingu en jafnframt spilar trúin enn stóran þátt í því að móta íslenska menningu. Hið gagnkvæma samband ríkis og kirkju er hér rakið og sýnt er fram á hvaða hlutverk það spilar í mótun þjóðarsamsemdar. Greint er frá togstreitu á milli trúarlegra og veraldlegra viðhorfa sem verður sett í samhengi við umræðu um kirkjuheimsóknir skólabarna á jólum. Ummæli biskups Íslands, Agnesar M. Sigurðardóttur varðandi þessar heimsóknir, eru skoðuð í samhengi við íslenska þjóðarsamsemdar. Út frá því verður ályktað hvað felst í því að læra að vera Íslendingur og hvernig sú staða eða vitund mótast í samhengi við ríkjandi trúarbrögð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Emma Ævarsdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/21118
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/21118

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Emma Ævarsdóttir 1989-. Að læra að vera Íslendingur: Hlutverk trúarbragða í mótun þjóðarsamsemdar. 2015. http://hdl.handle.net/1946/21118