Back to results

University of Iceland

Kynjakvótalögin: fjölbreytni, arðsemi og hindranir. Eykur fjölbreytni í stjórnum fyrirtækja, eftir tilkomu kynjakvótalaga, arðsemi og ryður burt hindrunum?

Abstract

dc:description.abstract

Í fyrri hluta þessarar ritgerðar verður almenn umfjöllun um kynjakvótalög bæði á Íslandi og í öðrum Evrópulöndum. Skoðuð verða rök með og á móti kynjakvótalögum með sérstöku tilliti til setningar kynjakvótalaga í Noregi en Noregur var fyrsta landið í heiminum til að innleiða lög um kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja árið 2003. Í síðari hluta ritgerðarinnar verða skoðuð viðhorf fjögurra stjórnarformanna, bæði kvenkyns og karlkyns, til kynjakvótalaganna. Tekin voru viðtöl við þá og þau greind í anda grundaðrar kenningar til þess að leitast við að fá svar við þeirri rannsóknarspurningu sem lagt var upp með: Eykur fjölbreytni í stjórnum fyrirtækja, eftir tilkomu kynjakvótalaga, arðsemi og ryður burt hindrunum? Allir viðmælendur voru sammála um að fjölbreytileiki stjórnarmanna sé eitt af mikilvægustu einkennum góðrar stjórnar en aðeins einn viðmælandi taldi kyn vera ákveðinn eiginleika sem yki þennan fjölbreytileika. Þrír af fjórum viðmælendum rannsóknarinnar höfðu ekki hugleitt að jafnara hlutfall kynjanna í stjórnum fyrirtækja gæti aukið arðsemi. Viðmælendur höfðu misjafnar skoðanir á kynjakvótalögunum en allir gátu tekið undir að lögin hjálpi til við að rjúfa „glerþakið” svo kallaða sem samanstendur af þeim hindrunum sem hefta framgang kvenna í atvinnulífinu. Kynjakvótalögin ryðja burt ákveðnum hindrunum kvenna til að komast í stjórnir og hvetja þær jafnframt til að gefa kost á sér í stjórnir fyrirtækja.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Anna Guðrún Gunnlaugsdóttir 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/20438
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/20438

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Anna Guðrún Gunnlaugsdóttir 1992-. Kynjakvótalögin: fjölbreytni, arðsemi og hindranir. Eykur fjölbreytni í stjórnum fyrirtækja, eftir tilkomu kynjakvótalaga, arðsemi og ryður burt hindrunum?. 2015. http://hdl.handle.net/1946/20438