Back to results

University of Iceland

"Eins og að fara aftur í tímann" : viðhorf framhaldsskólanemenda sem nýttu mikið spjaldtölvur í námi sínu í grunnskóla.

Abstract

dc:description.abstract

Í febrúar árið 2012 hóf Norðlingaskóli að nota spjaldtölvur sem aðalnáms-tæki og voru nemendur 9. bekkjar skólans þeir fyrstu sem tóku þátt í því þróunarverkefni. Matsrannsókn um áhrif spjaldtölvuvæðingar í Norðlingaskóla á nám og kennslu leiddi meðal annars í ljós jákvæð áhrif á viðhorf nemenda gagnvart námi. Vorið 2014, þegar rannsókn mín var gerð, hafði fyrsti árgangur Norðlingaskóla lokið námi sínu með notkun spjaldtölva (29 nemendur). Haustið 2013 hófu þeir nemendur göngu sína í framhaldsskólum landsins en þar var markviss notkun spjaldtölva í námi líkt og í Norðlingaskóla ekki í boði. Markmið þessarar rannsóknar er að skoða hvort og þá hvernig sú reynsla sem nemendur höfðu fengið í spjaldtölvunotkun í Norðlingaskóla nýttist þegar í framhaldsskólana var komið. Ellefu nemendur tóku þátt í þessari rannsókn, níu stúlkur og tveir drengir (38% af árgangi). Þau voru í framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu. Rannsóknin var eigindleg og byggðist á hálf-opnum viðtölum sem tekin voru í apríl 2014. Niðurstöðurnar leiddu í ljós að viðmælendur rannsóknarinnar voru á því að námið í Norðlingaskóla með spjaldtölvur sem aðalnámstæki höfðu styrkt sig í námi. Allir voru þeir mjög jákvæðir í garð reynslu sinnar þaðan. Þeir töldu sig hafa bætt sig á ýmsum sviðum, meðal annars orðið sjálfsstæðari og sjálfstraust þeirra aukist. Öllum gekk vel í náminu í Norðlingaskóla en þeim þótti námið í framhaldsskólunum erfiðara. Samt sem áður gekk öllum ágætlega þar líka. Framhaldsskólarnir þóttu formfastir þar sem eitt gengi yfir alla en í Norðlingaskóla var um einstaklingsmiðað nám að ræða. Almennt þótti þeim námið í framhalds-skólanum gamaldags og þurrt. Var talað um það að fara í framhaldsskóla væri eins og að fara aftur í tímann og söknuðu viðmælendurnir áhrifanna sem þau höfðu á nám sitt í Norðlingaskóla, frelsisins sem þau höfðu og síðast en ekki síst spjaldtölvanna. Greina mátti að framhaldsskólarnir mættu fara að tækni- og nútíma-væðast í meira mæli.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðmundur Ásgeirsson 1969-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/19550
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/19550

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðmundur Ásgeirsson 1969-. "Eins og að fara aftur í tímann" : viðhorf framhaldsskólanemenda sem nýttu mikið spjaldtölvur í námi sínu í grunnskóla.. 2014. http://hdl.handle.net/1946/19550