Back to results

University of Iceland

Vinna - fjármál - skóli : samþætting fjögurra námsgreina um vinnumarkaðsmál og fjármál

Abstract

dc:description.abstract

Þetta lokaverkefni við grunnskóladeild Kennaraháskóla Íslands byggir á samþættingu stærðfræði, lífsleikni, upplýsingatækni og bókfærslu í 9. og 10. bekk. Lokaverkefnið samanstendur af þremur þáttum; ritgerð með fræðilegri umfjöllun, verkefnum nemenda og kennsluleiðbeiningum. Verkefni nemenda miðast að því að fræða þá um grundvallaratriði vinnumarkaðsmála og fjármál unglinga þar sem þeir leysa verkefni sem meðal annars byggja á notkun Word-ritvinnslu og Excel-töflureiknis. Kennsluleiðbeiningarnar tíunda markmið hvers verkefnis og auðvelda kennurum mismunandi námsgreina fyrirlögn þeirra. Lokaverkefnið skiptist í þrjá hluta. Í fyrsta lagi er það er ritgerðin með spurningunni sem leitað er svara við; Hvernig geta unglingar öðlast skilning á grundvallarþáttum vinnumarkaðsmála? Í ritgerðinni er lögð áhersla á samþættingu námsgreina og fjallað um hvernig best er að fræða nemendur um grundvallarþætti vinnumarkaðarins ásamt því að fjalla um fjármál unglinga. Í öðru lagi fylgir ritgerðinni sérstakt hefti með 13 verkefnum ásamt aukaverkefnum þar sem vinnumarkaðsmál eru krufin til mergjar og fjármál unglinga tekin til umfjöllunar. Í þriðja lagi er hefti með kennsluleiðbeiningum með verkefnum nemenda og lausnum nokkurra þeirra. Verkefni í Excel-töflureikni eru á meðfylgjandi geisladiski. Lykilorð: Vinnumarkaðsmál, fjármál, samþætting.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þorfinna Lydia Jósafatsdóttir
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/1904
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/1904

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þorfinna Lydia Jósafatsdóttir. Vinna - fjármál - skóli : samþætting fjögurra námsgreina um vinnumarkaðsmál og fjármál. 2008. http://hdl.handle.net/1946/1904