Back to results

University of Iceland

Vinsældir og félagsfærni barna

Abstract

dc:description.abstract

Flestir foreldrar sjá fyrir sér að barnið þeirra muni eignist vini sem verða því samferða og deila mikilvægum áföngum í lífi þess, en sú verður ekki alltaf raunin. Markmið ritgerðar er að skoða tengsl vinsælda og félagsfærni barna við skapgerð, uppeldi og samskipti þeirra við foreldra. Viðfangsefnið er brýnt því félagsleg einangrun barna getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Í ritgerðinni er útlistað hvað einkennir vinsæl og félagsfær börn samkvæmt kenningum og rannsóknum, hvaða þættir geta ýtt undir félagsfærni. Fjallað er um tengsl skapgerðar og vinsælda og um börn sem lenda utan félagahópsins. Helstu niðurstöður eru þær að börn sem sýna einkenni viðkunnanleika og úthverfu eru líklegust til þess að njóta vinsælda og hafa góða félagsfærni. Sú færni byggir meðal annars á þroska siðferðisvitundar og hæfninni að setja sig í spor annarra. Þeir þættir í sambandi foreldra og barna sem stuðla að aukinni félagsfærni eru myndun öruggra geðtengsla, foreldrar beiti leiðandi uppeldisháttum, séu virkir í lífi barna sinna og að hlýja ríki í samskiptum foreldra og barna. Afleiðingar þess að lenda utan hópsins geta verið þunglyndi, kvíði og tilraun til sjálfsvígs. Niðurstöðurnar má nýta til þess að upplýsa foreldra og aðra sem vinna með börnum svo unnt sé að stuðla að jákvæðum samskiptum milli barna og koma í veg fyrir að börn stuðli að einangrun annarra barna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Agnes Sif Agnarsdóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/18888
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/18888

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Agnes Sif Agnarsdóttir 1985-. Vinsældir og félagsfærni barna. 2014. http://hdl.handle.net/1946/18888